Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. júlí 2026 07:31 Allar líkur eru á því að Andy Burnham verði næsti forsætisráðherra Bretlands. Getty/Dan Kitwood Ljóst þykir að Andy Burnham, fráfarandi borgarstjóri Manchester, verði næsti leiðtogi Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Hann hefur tryggt sér stuðning 322 þingmanna.
Burnham er einn um að hafa lýst yfir framboði en opnað var fyrir tilnefningar þingmanna í gær. Ef Burnham tekst að tryggja sér stuðning aðeins eins þingmanns til viðbótar er mótframboð útilokað, þar sem enginn annar getur þá tryggt sér áskilið fylgi 81 þingmanns. Nokkrir þingmenn hafa þegar greint frá því að þeir hafi ekki getað skilað inn tilnefningu í gær en hyggist styðja Burnham. Ef ekkert mótframboð berst, eins og útlit er fyrir, verður Burnham útnefndur leiðtogi Verkamannaflokksins í næstu viku og tekur við sem forsætisráðherra 20. júlí næstkomandi. Aðeins nokkrar vikur eru frá því að Burnham tryggði sér þingsæti, eftir að þingmaður Makerfield steig til hliðar til að greiða leið hans. Burnham sagðist í yfirlýsingu vera afar þakklátur þingmönnum Verkamannaflokksins. Hann hefur heitið því að gera ýmsar umfangsmiklar breytingar, þar á meðal að flytja valdið úr Westminster og út á landsbyggðina. Þess er beðið með mikilli eftirvæntingu að hann tilkynni um mögulegar breytingar á ríkisstjórninni en hann hefur þegar gefið út að Jonathan Powell verði áfram þjóðaröryggisráðgjafi.
Bretland Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Sjá meira