Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. júlí 2026 13:47 Yulia Svyrydenko gegndi embættinu í eitt ár. EPA Yulia Svyrydenko, forsætisráðherra Úkraínu, hefur sagt embætti sínu lausu eftir að Vólodimír Selenskí Úkraínuforseti tilkynnti að hann hygðist gera breytingar á ríkisstjórn landsins. Hún gegndi embættinu í eitt ár.
Fyrir tveimur dögum tilkynnti Selenskí að hann hygðist skipta um forsætisráðherra sem leiddi til afsagnar ríkisstjórnarinnar. Rök hans fyrir breytingunni voru að tryggja þyrfti framkvæmd uppfærðrar pólitískrar stefnu. „Undirbúningur fyrir veturinn er mikilvægt forgangsatriði og Úkraína verður að vera undirbúin fyrir allar ógnir,“ skrifaði forsetinn í færslu á X. „Ég ræddi þessi smáatriði við Yuliiu Svyrydenko, forsætisráðherra Úkraínu. Við ákváðum að þessar breytingar krefjist breytinga á ríkisstjórninni. Ég er þakklátur Yuliiu fyrir skýra, stöðuga og árangursríka vinnu sem forsætisráðherra, fyrir áralanga farsæla þjónustu í teymi Úkraínu og ég hef boðið henni tækifæri til að leiða nýtt og mikilvægt svið í samskiptum við lykilsamstarfsaðila.“ Svyrydenko var skipuð í júlí 2025 eftir að hafa verið aðstoðarskrifstofustjóri Selenskí í eitt ár og síðan aðstoðarforsætisráðherra í fjögur ár. Samkvæmt úkraínskum lögum þarf þingið að samþykkja afsögn forsætisráðherra og felur hún í sér afsögn allrar ríkisstjórnarinnar. Reuters hefur eftir ónefndum þingmönnum að hugsanlegir arftakar séu Denys Shmyhal orkumálaráðherra, Mykhailo Fedorov, varnarmálaráðherra, og Serhiy Koretskyi, yfirmaður ríkisorkufyrirtækisins Nftogaz.
Úkraína Mest lesið Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Erlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Erlent Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Innlent Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Innlent Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Innlent Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Erlent Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Innlent Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Innlent Fleiri fréttir Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Sjá meira