Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Jón Þór Stefánsson skrifar 16. júlí 2026 10:21 Atvikið átti sér stað í strætó. Vísir/Arnar Karlmaður hlaut í vikunni skilorðsbundinn dóm í Héraðsdómi Reykjaness fyrir líkamsárás sem hann framdi í strætó þar sem hann réðst á vagnstjóra.
Atvikið sem um ræðir átti sér stað í júní 2024. Manninum var gefið að sök að hafa slegið strætóbílstjórann einu sinni í höfuðið, og svo dregið hann úr ökumannssæti strætisvagnsins. Þar á eftir hafi maðurinn slegið vagnstjórann ítrekað með krepptum hnefa í höfuðið og potað tveimur fingrum í augu hans, og svo sparkað í líkama hans, og kýlt einu sinni í viðbót. Svo virðist sem bílstjórinn hafi náð taki á manninum um tíma, en svo sleppt honum. Þá hafi maðurinn aftur kýlt hann í höfuðið. Og svo, þegar búið var að koma honum úr vagninum, hafi hann aftur ráðist á vagnstjórann með því að klípa hann í eyrað. Fyrir vikið hlaut strætóbílstjórinn ýmsa áverka. Árásarmaðurinn játaði sök fyrir dómi. Hann sagðist hafa verið í neyslu þegar árásin hafi átt sér stað en nú væri hann búinn að snúa við blaðinu, og væri búinn að standa sig vel. Hann sagðist iðrast gjörða sinna og krafðist þess að fá vægustu refsingu sem lög leyfa. Hann var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
Strætó Dómsmál Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Fleiri fréttir Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Sjá meira