Innlent

Undir­búningur fyrir þjóðar­at­kvæði í fullum gangi og hækkun há­marks­hraða rædd

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hádegismynd

Í hádegisfréttum fjöllum við um undirbúning komandi þjóðaratkvæðagreiðslu en utankjörfundaratkvæðagreiðslan hefst eftir rúma viku.

Einnig ræðum við tillögur Viðskiptaráðs um hækkun hámarkshraða á þjóðvegum en fullyrt er að slíkt gæti sparað milljónir klukkustunda og milljarða króna. Við heyrum álit sérfræðings á þessum pælingum.

Að auki verður rætt við yfirækni SÁÁ sem óttast að þeim fjölgi sem glíma við spilafíkn í kjölfar HM í fótbolta. 

Í sportinu er það svo opna breska meistaramótið í golfi sem hófst í Skotlandi í morgun og úrslitin á HM í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×