Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júlí 2026 20:05 Jackson Suber átti frábæran fyrsta dag en hann fékk örn á sautjándu holunni. Getty/David Cannon Bandaríski kylfingurinn Jackson Suber er öllum að óvörum með forystuna eftir fyrsta dag á Opna breska risamótinu, The Open.
Fyrir fimm dögum hafði Suber aldrei einu sinni komið til Evrópu en ef marka má fyrstu kynni er óhætt að gera ráð fyrir að hann sé himinlifandi með sína fyrstu reynslu af Evrópu. Bandaríkjamaðurinn kom í fyrsta sinn til Evrópu þegar hann mætti til að undirbúa sig fyrir sína fyrstu þátttöku á Opna breska. Jackson Suber currently leads The 154th Open at -5, thanks to shots like this one. pic.twitter.com/hXTgB8R5nz— The Open (@TheOpen) July 16, 2026 Eftir frábæran fyrsta hring þar sem hann spilaði á 65 höggum, eða fimm höggum undir pari, hélt hann hins vegar aftur í klúbbhúsið sem efsti maður og á undan stórstjörnum íþróttarinnar á borð við ríkjandi meistara Scottie Scheffler, Bryson DeChambeau og Rory McIlroy. DeChambeau er á þremur höggum undir pari, Scheffler er á tveimur höggum undir pari en McIlroy er á tveimur höggum yfir pari eftir erfiðan dag. Suber endaði hringinn á tveimur fuglum og einum erni á síðustu fimm holunum. Næstu menn eru einu höggi á eftir Suber en það eru Englendingurinn Daniel Brown og Suður-Kóreumaðurinn Sungjae Im sem léku á fjórum höggum undir pari. Það eru síðan níu kylfingar jafnir í fjórða til tólfta sæti á þremur höggum undir pari. Eftir fyrstu átján holurnar sagði Suber að auk þess að vera nýr í Evrópu væri hann einnig ókunnugur strandgolfi fyrir þessa viku. Solo leader Jackson Suber might be new to links golf ... but he's not showing it.He's in the house with a 5-under 65 @TheOpen. https://t.co/695FPm31OO pic.twitter.com/duKADjtFBW— PGA TOUR (@PGATOUR) July 16, 2026 „Þetta er fimmti dagurinn minn hér. Á mánudaginn spilaði ég minn fyrsta hring í strandgolfi, þannig að ég hef spilað 27 holur áður en ég spilaði fyrstu umferðina í dag. Ég hef aldrei komið til Evrópu,“ sagði Jackson Suber. Hann viðurkenndi að þótt hann væri ekki viss um hvernig hann hefði aðlagast nýju umhverfi sínu svona fljótt hefði formið hans fyrir risamótið haft eitthvað með það að gera. „Ég er ekki alveg viss, en mér finnst ég bara hafa verið að spila vel síðustu mánuði og veit að góður leikur sér um allt, og treysti kylfuberanum mínum fullkomlega til að ákveða hvert við ætlum að slá,“ sagði Suber. Suber sagði einnig frá því að hann hefði undirbúið sig fyrir hina einstöku áskorun strandgolfs með því að horfa á YouTube-myndband af Royal Birkdale-golfvellinum. „Ég held ég hafi horft á YouTube-myndband um hverja holu á Birkdale á föstudaginn í síðustu viku eða fimmtudaginn, en fyrir utan það, já, bara – ég er með tölfræðing sem hefur auðvitað hjálpað mér, svo ég veit bara að pottglompurnar eru slæmar og maður á að halda sig frá þeim,“ sagði Suber.
Golf Opna breska Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið Íslenski boltinn Kokhraustur eftir neyðarfund Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Íslenski boltinn Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Fleiri fréttir Völlurinn fyrir Íslandsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“ Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Tíu fyrrum Íslandsmeistarar keppa á Íslandsmótinu í golfi í ár Vann bráðabanann eftir að hafa beðið lengi í klúbbhúsinu Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Gagnrýnd fyrir að hrekkja kylfusveininn Danir og Norðmenn keppa í golfinu í anda Ryder-bikarsins Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja Sjá meira