„Mercedes ætti að vera með mun meira forskot“ Andri Broddason skrifar 17. júlí 2026 11:32 Lewis Hamilton ætlar að leggja sig allan fram til að ná sínum áttunda heimsmeistaratitli. Mark Sutton/Getty Images Lewis Hamilton er bjartsýnn fyrir belgíska kappaksturinn og vonar að Ferrari geti haldið áfram góðu gengi. Staðan í heimsmeistaramóti Formúlu 1 er jöfn en það kemur Hamilton á óvart að Mercedes sé ekki búið að stinga af.
Aðeins 25 stig skilja George Russell og Kimi Antonelli að í efstu tveim sætum heimsmeistaramótsins í Formúlu 1. Þeir eru báðir ökumenn Mercedes en Lewis Hamilton hjá Ferrari er aðeins sjö stigum frá Russell í öðru sætinu. Ökumenn fá 25 stig fyrir sigur á kappakstri og því mikil pressa á toppnum. Mercedes bílarnir hafa verið þeir hröðustu á tímabilinu en bílarnir hafa verið að bila á óhentugum tímum og liðið misst af dýrmætum stigum. Tímabilið í Formúlu 1 er að verða hálfnað og er Hamilton feginn að vera nálægt efsta sæti heimsmeistaramótsins. „Það er frábært að heimsmeistaramótið sé svona jafnt. Mercedes ætti að vera með mun meira forskot en vonandi heldur mótið áfram að vera spennandi.“ Ánægður að fá stöðugan bíl Stöðugleiki Ferrari bílsins hefur hjálpað liðinu virkilega þar sem bíllinn hefur lítið sem ekkert bilað. Hamilton hefur enn ekki klárað keppni neðar en sjötta sæti á tímabilinu. „Liðið er búið að smíða frábæran bíl og ég er virkilega þakklátur. Ég reyni að ná öllum þeim hraða sem ég get út úr bílnum í hvert skipti fyrir liðið. Hver einasti hringur og hvert einasta stig skiptir máli.“ Lewis Hamilton var svekktur í vikunni þegar England tapaði í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. „Ég er stoltur af enska landsliðinu að ná eins langt og það gerði. Ég veit hvað þeir voru búnir að leggja mikla vinnu í mótið og ég er mjög svekktur fyrir þeirra hönd.“
Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Grindavík mokar inn verðlaunum Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa Eini aðdáandi Zirkzee á Íslandi fundinn Forseti Ólympíusambands Póllands handtekinn UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Meistaraliðið selt fyrir metverð Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Sjá meira