Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Eiður Þór Árnason skrifar 17. júlí 2026 16:14 Sveitarfélögin kalla eftirafdráttarlausum svörum frá atvinnuvegaráðuneyti og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. Hanna Katrín Friðriksson og Jóhann Páll Jóhannsson fara með málaflokkanna. Vísir Fulltrúar allra sveitarfélaga á landinu segja skorta fullnægjandi svör frá ráðuneytum og stofnunum um það hvernig umfangsmikilli tilfærslu heilbrigðiseftirlits verður háttað. Þingið samþykkti nýverið að flytja meginverkefni núverandi heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga til nýrrar Stofnunar atvinnuveganna og Umhverfis- og orkustofnunar.
Landshlutasamtök sveitarfélaga um allt land telja brýnt að ráðuneytin svari því án tafar hvernig staðið verði að framkvæmd breytinganna. Sveitarfélög þurfi að geta undirbúið næstu skref og mörgum lykilspurningum sé enn ósvarað. Nýju lögin taka gildi um áramótin. „Hér er um er að ræða stórt yfirfærsluverkefni sem krefst mikils samráðs. Landshlutasamtök sveitarfélaga víða um land hafa óskað eftir samtölum við ráðuneyti og stofnanir sem að málum koma án þess að fá fullnægjandi svör um næstu skref,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá landshlutasamtökunum. Vita ekki hver ber ábyrgð á uppsagnarkostnaði Beinast spurningar meðal annars að því hver beri ábyrgð á starfsfólki og skuldbindingum, hver greiði fyrir yfirfærsluna og hvaða verkefni verði eftir hjá sveitarfélögum. Að sögn landshlutasamtakanna hefur ekki verið skýrt hvort allt núverandi starfsfólk flytjist yfir til áðurnefndra ríkisstofnana. Sveitarfélög þurfi til að mynda að vita hver beri ábyrgð á uppsagnarkostnaði, lífeyrisskuldbindingum og öðrum starfsmannatengdum réttindum ef ekki verður um beina yfirfærslu að ræða. „Á sama tíma þarf að skýra hvernig farið verður með húsnæði, bifreiðar, tækjabúnað, tölvukerfi, skjalasöfn, samninga og aðrar eignir sem byggðar hafa verið upp af sveitarfélögum í áratugi. Enn liggur ekki fyrir hvernig slíkt uppgjör verður framkvæmt eða hver greiðir þann kostnað sem af því hlýst.“ Geti ekki sætt sig við að kostnaður við tilfærslu lendi sjálfkrafa á sveitarfélögum Heilbrigðiseftirlitin hafi bent á að vinna við að flytja gögn, málaskrár, eftirlitssögu, leyfi, samninga og önnur stjórnsýslugögn yfir í kerfi ríkisins verði tímafrekt og kostnaðarsamt verkefni. „Samt hefur ekki verið gerð grein fyrir því hver eigi að bera þann kostnað eða hvernig tryggt verði að gögn skili sér til réttra stofnana og sveitarfélaga. Sveitarfélög geta ekki sætt sig við að ákvörðun ríkisins leiði til þess að kostnaður vegna framkvæmdarinnar lendi sjálfkrafa á þeim. Það þarf að liggja skýrt fyrir áður en breytingarnar taka gildi.“ Landshlutasamtök sveitarfélaganna gera einnig athugasemdir við að ekki liggi fyrir hvaða verkefni verði áfram hjá sveitarfélögunum. „Bráðabirgðagreiningar benda meðal annars til þess að sveitarfélög muni áfram sinna verkefnum tengdum staðbundnum samþykktum, umgengni á lóðum, úrgangsmálum, gæludýrahaldi, fráveitum, loftgæðum, hávaða, vatnsvernd og ýmsum nærumhverfismálum.“ Ekki hafi verið birt yfirlit yfir hvaða verkefni verða eftir, hvernig þau verða fjármögnuð eða hvaða stjórnvaldsheimildir sveitarfélög hafa til að sinna þeim. Hagsmunamál alls samfélagsins Kallað er eftir „afdráttarlausum svörum“ frá atvinnuvegaráðuneyti, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og þeim stofnunum sem taka við verkefnum frá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna. „Sveitarfélög, starfsfólk, atvinnulíf og íbúar eiga rétt á að vita hvernig breytingarnar verða útfærðar, hver ber kostnaðinn og hvernig tryggt verður að þjónusta, staðþekking og fagleg geta glatist ekki í ferlinu. Ef takast á að koma nýju kerfi í framkvæmd um næstu áramót þarf að liggja fyrir skýr og tímasett framkvæmdaráætlun eigi síðar en í haust. Það er ekki aðeins hagsmunamál sveitarfélaga heldur alls samfélagsins.“ Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Skotárás við Álaborg Erlent Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Innlent Fleiri fréttir Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn Sjá meira