Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Freyja Þórisdóttir skrifar 19. júlí 2026 15:10 Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir núverandi ríkisstjórn ekki gera sér fyllilega grein fyrir áhrifum hærri skatta á ferðaþjónustugreinina. Vísir Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir jákvætt að unnið sé að því að vinna upp samkeppnishæfni sem hafi tapast undanfarin ár. Aftur á móti séu ýmis atriði sem séu óásættanleg og núverandi ríkisstjórn haldi uppi mýtum um greinina frekar en staðreyndum. Sem dæmi sé því haldið fram að hún sé best geymd á lágframleiðni- og láglaunaskalanum þegar hún sé í raun meðallaunagrein í hagkerfinu.
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, var einn viðmælenda í Sprengisandi í dag, sunnudaginn 19. júlí. Þar hóf hann mál sitt á því að telja upp þá hluti sem hafa farið vel síðan núverandi ríkisstjórn tók við en augljóst þykir að það hafi andað köldu milli samtakanna og stjórnarinnar frá því að hún tók við. „Við höfum átt mjög gott og uppbyggilegt samtal við stjórnvöld að mörgu leyti,“ segir hann og bætir við að upplifun hans sé að hlustað sé á fólk í greininni varðandi margt. Eitt nýjasta dæmið sé að aukið fjármagn hafi verið veitt í neytendamarkaðssetningu í ferðaþjónustu. „Við höfum ítrekað bent á að það sé besta leiðin til þess að skapa verðmæti og auka verðmæti, fá þá markhópa ferðamanna til landsins sem við viljum, stýra því sjálf hvaða hópar koma hingað og hvaða verðmæti þeir skilja eftir og svo framvegis,“ segir hann og ítrekar að það sé besta leiðin til þess að vinna gegn „þeirri töpuðu samkeppnishæfni sem við höfum horft upp á síðustu ár.“ Farið eftir tilfinningu Þá segir hann þó ekki vera hægt að neita því að á heildina litið hafi hann og fleiri haft ýmislegt við það að athuga hvernig stjórnvöld tali um greinina. „Hjá ýmsum stjórnmálamönnum hefur ekki verið farið eftir staðreyndum heldur einhvers konar tilfinningum eða jafnvel bábiljum og mýtum um þessa grein. Sumar teknar bara erlendis frá um að þetta sé allt saman sko láglaunagrein eða láglaunastörf,“ segir Jóhannes. Það eigi ekki við nægileg rök að styðjast enda sé staðreyndin sú að ferðaþjónustugreinin sé meðallaunagrein í hagkerfinu þegar það sé tekið fyrir í heild sinni. Framsetningin sé hreint út sagt lygileg. „Þetta er ekki rétt og það er kannski það fyrsta sem við höfum beðið um, að það sé talað um þessa atvinnugrein á grundvelli staðreynda en ekki einhverra stjórnmálalegra útúrsnúninga,“ segir hann jafnframt. Fara í „Ég sagði þér“-frakkann Framleiðni greinarinnar hafi aukist umfram aðrar atvinnugreinar á síðustu árum og þannig séu hlutirnir að vissu leyti að ganga ágætlega í þá átt sem stjórnvöld vilji að atvinnugreinar gangi. „En þá segi ég: Er þá ekki skynsamlegt að bíða aðeins með að leysa skammtímavanda ríkisfjármálanna með því að segja bara: „Heyrðu, við ætlum að fá þetta marga milljarða í viðbót frá ferðaþjónustu án þess að það sé búið að ákveða sérstaklega svona hvort að það sé skynsamlegt,“ segir Jóhannes en hann ítrekar að meta þurfi áhrif sem síendurteknar skattabreytingar og skattahækkanir sem settar séu á ferðaþjónustu hafi. „Við þurfum svona í febrúar, mars, inn að vori, að fara í „Ég sagði þér“-frakkann sem hangir á snaga aftan við hurðina hjá mér á skrifstofunni, fara niður á þing og segja: „Heyrðu, sjáið þið, þið fenguð ekki peningana inn sem þið vilduð fá úr þessari skattahækkun vegna þess að þegar þið hækkið skatta þá hefur það áhrif á hegðun kúnnanna okkar, sem eru ferðamennirnir.“ Þetta sé ekki eins og að hækka skatta á framleiðslufyrirtæki sem framleiði og selji „dauða hluti“. Ferðamenn hafi úr fjölda áfangastaða að velja og hafi val um það hvort þeir vilji verja sínu fé hér á Íslandi eða til dæmis í Noregi. Hlustaðu á Jóhannes ræða frekar um ósætti fólks í greininni vegna innleiðingar nýju skattanna í spilaranum hér fyrir neðan.
Sprengisandur Ferðaþjónusta Skattar, tollar og gjöld Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samtal við stjórnmálin um framtíð ferðaþjónustunnar Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira