Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Árni Sæberg skrifar 20. júlí 2026 10:19 Gréta María, t.v., og Hrund eru gengnar til liðs við Sjá. Sjá Samtökin Sjá, sem berjast fyrir því að þjóðin segi já við áframhaldandi aðildarviðræðum við ESB í ágúst, hafa fengið liðsauka með komu Grétu Maríu Grétarsdóttur, fyrrverandi forstjóra Prís, og Hrundar Rudólfsdóttur, framkvæmdastjóra Sólvalla rekstrarfélags, í stjórn hreyfingarinnar. Fyrir í stjórn eru þau Jónas Hagan, Hjálmar Vilhjálmsson og Berglind Guðmundsdóttir.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Gréta María og Hrund búi báðar yfir víðtækri reynslu, mikilli þekkingu og sterkri sýn sem muni nýtast hreyfingunni vel á komandi vikum. Það sé mikill fengur fyrir Sjá að fá þær til liðs við sig á þessum mikilvæga tímapunkti. Spennandi tímar fram undan Fram undan séu spennandi tímar þar sem lögð verði sérstök áhersla á málefnalega, jákvæða og aðgengilega upplýsingamiðlun um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Markmið Sjá sé að stuðla að vandaðri umræðu og hvetja fólk til að kjósa „já til að sjá“, svo þjóðin geti tekið vel ígrundaða ákvörðun um framtíð sína. „Við erum afar ánægð með að Gréta María og Hrund hafi ákveðið að ganga til liðs við okkur. Þær styrkja teymið okkar og koma með dýrmæta reynslu og kraft inn í starfið. Við hlökkum til samstarfsins og þeirra verkefna sem fram undan eru,“ er haft eftir Berglindi Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Sjá. Taka þurfi ákvörðun byggða á áreiðanlegum gögnum Haft er eftir Grétu Maríu að það sé mikilvægt að taka ákvörðun um framtíð Íslendinga byggða á áreiðanlegum gögnum. „Mér finnst því eðlilegt að við fáum að sjá hvað samningur felur í sér. Ég segi já þann 29. ágúst því ég vil geta tekið upplýsta ákvörðun um framtíð mína.“ Þá er haft eftir Hrund að fram undan sé mikilvæg umræða um stóra ákvörðun sem muni hafa mikil áhrif á Ísland, sama hver niðurstaðan verður. Það sé flókin og erfið vegferð fyrir þjóð að taka slíka umræðu og mikilvægt að þegar niðurstaða sé komin, að um hana ríki sem víðtækust sátt. „Ég tel mikilvægt að við skoðum nánar hvað í aðild að Evrópusambandinu gæti falist af tveimur stórum ástæðum. Í fyrsta lagi til að afla þeirra upplýsinga sem eru forsenda málefnalegrar umræðu og réttrar ákvarðanatöku. Í öðru lagi þá tel ég að það sé besta leiðin til að tryggja sátt í samfélaginu til framtíðar litið.“
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira