Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. júlí 2026 11:16 Vagnstjórar Strætó segja ógnvænlega hegðun hafa aukist. Vísir/Vilhelm Eftirlitsmenn Strætó hafa í um tvö ár klæðst svokölluðum stunguvestum. Að sögn Jóhannesar Svavars Rúnarssonar, forstjóra Strætó, voru vestin keypt eftir að starfsmennirnir óskuðu eftir því.
Athygli var vakin á klæðaburðinum í Facebook-hópnum Ísland - þvert á flokka í gær og mynd birt af starfsmanni í vestinu. Þar var því haldið fram að hótanir í garð vagnstjóra hefði aukist verulega og að gerandurnir væru margir „arabískir karlmenn“. „Þeir óskuðu eftir því að fá að vera í þessu og við því var orðið,“ segir Jóhannes um eftirlitsmennina, sem hafa það hlutverk að fara á milli vagna og gæta að því að farþegar hafi greitt fargjaldið. Eftirlitsmennirnir eru tveir og þeir hafa heimild til þess að leggja svokallað „fargjaldaálag“ á þá sem geta ekki sýnt fram á greiðslu fargjaldsins. Það má bæði innheimta á staðnum eða greiða í heimabanka. Að sögn Jóhannesar hafa engin atvik komið upp, hvorki áður en vestin voru keypt né eftir það, sem kallað hafa á notkun þeirra. „En þetta er svona öryggisins vegna,“ segir hann. Spurður að því hvort hótunum eða árásum á vagnstjóra hafi fjölgað, líkt og haldið var fram í Facebook-færslunni, segist Jóhannes ekki hafa séð neina tölfræði sem styður það. „En við höfum áhyggjur af öllu ofbeldi,“ segir hann. Vísir greindi frá því á dögunum að maður hefði verið dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á vagnstjóra, kýla og pota í augu hans. Pétur Karlsson, trúnaðarmaður hjá Strætó, sagði af því tilefni að árásir væru ef til vill ekki daglegt brauð en að ógnvænlegt atferli væri það. „Það hefur töluvert verið kvartað undan því, já, yfir ógnvænlegri hegðun. Það er ekki beint verið að ráðast á með höndum daglega, en þetta ógnvænlega atferli, það er í gangi alla daga,“ sagði Pétur.
Strætó Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira