Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. júlí 2026 11:45 Skúli Tómas er hjartalæknir og á eitt stærsta málverkasafn landsins. Vísir Héraðsdómur Reykjaness vísaði í morgun frá máli héraðssaksóknara gegn Skúla Tómasi Gunnlaugssyni hjartalækni sem var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Héraðsdómur telur Skúla þegar hafa verið refsað vegna málsins þegar landlæknir svipti hann lækningaleyfi árið 2021.
Skúli Tómas segir í færslu á Facebook að það sé mikill léttir að ákærunni hafi verið vísað frá. Hann slær þó þann varnagla að ekki liggi fyrir hvort ákæruvaldið kæri niðurstöðuna til Landsréttar. Hann treystir því þó að hvernig sem fari verði niðurstaðan honum í hag. „Kæru vinir. Í morgun var ákæru á hendur mér vísað frá dómi. Niðurstaða dagsins er mikill léttir. Hvert sem framhald málsins verður treysti ég því að niðurstaðan verði mér í hag og kvíði henni alls ekki. Við erum með sannleikann að vopni og hann mun á endanum sigra eins og ég hef ávallt haldið fram en ekki mátt segja frá vegna þagnarskyldu,“ segir í færslunni. Fimm ára lögreglumál Skúli Tómas hefur sætt rannsókn lögreglu frá árinu 2021 þegar fyrst var greint frá því að hann væri grunaður um röð alvarlegra mistaka sem hefði leitt til andláts sjúklings. Málið átti eftir að vinda upp á sig og fjölgaði í hópi aðstandenda fólks sem taldi lækninn hafa valdið ótímabærum dauðsföllum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Fór svo að Embætti landlæknis svipti hann leyfi til lækninga. Skúli Tómas hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu. Hann fékk lækningaleyfi sitt á nýjan leik árið 2024. Í mars síðastliðnum var greint frá því að fimm mál á hendur honum hefðu verið felld niður en hann ákærður í einu máli. Skúli Tómas sagðist eiga erfitt með að skilja þá ákvörðun. „Málið snýst um flókin læknisfræðileg atriði. Það er eðlilega erfitt fyrir ákæruvaldið að átta sig vel á slíku. Núna verður þó loksins hægt að fara yfir þetta heildstætt og meta þetta eina mál sem eftir er af þeim staðreyndum sem liggja fyrir. Þær hafa því miður ekki fengið að koma fram enn þá þar sem við erum bundin trúnaði,“ segir Skúli Tómas í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í lok mars. Við þingfestingu málsins fyrir héraðsdómi fór Almar Möller, verjandi Skúla, fram á frávísun málsins. Eva Hauksdóttir, lögmaður og dóttir Dönu Jóhannsdóttur, sjúklingsins sem lést í umönnun Skúla Tómasar og hann var ákærður fyrir að bana, fór hörðum höndum um Skúla Tómas. Vísaði hún til ellefu andláta á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem komið hefðu til kasta lögreglu. Af þeim fóru sex í formlega rannsókn og rannsókn var felld niður í fimm þeirra. Almar verjandi Skúla útskýrir fyrir blaðamanni Vísis að niðurstaða héraðsdóms í morgun um frávísun hafi grundvallast á því að bannað sé að refsa mönnum eða láta þá gangast undir tvöfalda málsmeðferð út af sama atvikinu. Þannig hafi landlæknir á sínum tíma tekið ákvörðun um að svipta Skúla Tómas lækningaleyfi og því sé ekki hægt að refsa honum aftur fyrir sama brot. Uppfært: Í fyrri útgáfu sagði að úrskurðuinn hefði verið kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur en hið rétt er að það var í Héraðsdómi Reykjaness.
Læknamistök á HSS Dómsmál Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira