Féll í yfirlið í miðjum leik Andri Broddason skrifar 22. júlí 2026 22:02 Cameron Menzies sagðist hafa spilað sinn besta leik í gær þegar hann vann Luke Humphries en féll í yfirlið í leik gegn Ross Smith Tom Dulat/Getty Images Cameron Menzies þurfti að gefa leikinn sinn í dag gegn Ross Smith í World Matchplay-mótinu í pílukasti. Menzies var búinn að spila þrjá leggi þegar hann varð úrvinda á sviðinu og svo leið yfir hann baksviðs.
Cameron Menzies vann Luke Humphries í fyrstu umferð World Matchplay-mótsins í pílukasti í gær. Hann vann leikinn 10-7 og lokaði síðasta leggnum með 170. Það er mesta sem hægt er að skjóta út og kallast það „stóri fiskurinn“. Í kvöld keppti hann gegn Ross Smith í annarri umferð mótsins. Búið var að leika þrjá leggi og var Menzies yfir 2-1 þegar hann byrjaði að vera ringlaður á sviðinu. Mótherji hans og dómarar leiksins komu honum til aðstoðar og var hann tekinn baksviðs. Þar leið yfir Menzies og var farið með hann til aðhlynningar og var svo færður á hótelið sitt til að jafna sig. Hann gat ekki haldið áfram keppni og þurfti því að gefa leikinn gegn Smith. Alþjóða pílukastsambandið deildi upplýsingum um að Menzies hefði jafnað sig og að það væri í lagi með hann. Hann gæti þó ekki haldið áfram keppni á mótinu. PDC statement: Cameron Menzies pic.twitter.com/tPBaeNPSa0— PDC Darts (@OfficialPDC) July 22, 2026 Menzies hefur áður vakið athygli á sviðinu en hann blóðgaði sig eftir að hafa dottið úr heimsmeistaramótinu í pílukasti. Hann barði borð og fékk skurð á hendina auk þess sem hann stakk hendinni sinni í flugelda sem var á sviðinu. Hann baðst svo afsökunar á hegðun sinni.
Pílukast Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Grindavík mokar inn verðlaunum Körfubolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Fleiri fréttir Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Grindavík mokar inn verðlaunum Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa Eini aðdáandi Zirkzee á Íslandi fundinn Forseti Ólympíusambands Póllands handtekinn UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Meistaraliðið selt fyrir metverð Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Sjá meira