Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Agnar Már Másson skrifar 24. júlí 2026 18:45 Nokkrar samgöngutruflanir hafa orðið vegna gróðurelda í nágreni við Madrid. Getty Sendiherra Íslands í Madrid segir að spænsk-íslensk hjón hafi þurft að flýja heimili sitt vegna skógarelda í nágrenni við Madríd. Skógareldar hafa valdið miklu tjóni á Spáni, Ítalíu og í Frakklandi undanfarna viku.
Í sumar hefur hitabylgja gert íbúum á meginlandi Evrópu lífið leitt. Þó að dregið hafi úr hitabylgjunni hefur önnur vá tekið við í sunnanverðri álfunni: skógareldar. Eldar hafa logað á Spáni, Frakklandi og Ítalíu síðustu vikur. Í Frakklandi brenna eldarnir helst í Gironde í suðvesturhluta landsins. Á Ítalíu hefur mest verið um skógarelda í fjöllum Sikileyjar en á Spáni hefur neyðarástandi verið lýst yfir í kringum höfuðborgina Madrid og í Avila-héraði þar sem eldar brenna nú stjórnlaust. Kristján Andri Stefánsson er sendiherra Íslands í Madríd en á svæðinu umhverfis borgina hafa tuttugu þúsund manns þurfta að flýja heimili sín, þar á meðal íslensk hjón. Engar fréttir hafa borist af manntjóni, að undanskildum slökkviliðsmönnum. „Ein (íslensk) hjón voru einmitt búsett á þessu svæði sem þurftu að yfirgefa híbýli sín,“ segir Kristján Andri sendiherra. Hann segir þungt hljóð í íbúum Spánar enda séu þeim enn í fersku minni gróðureldar í Almería-héraði fyrir tveimur vikum, sem urðu tólf manns að bana. Alls hafa fleiri en áttatíu þúsund flúið heimili sín í Frakklandi, Spáni og Ítalíu vegna eldanna og hafa Frakkar farið fram á aðstoð frá Evrópusambandinu til að tækla elda sem þar brenna við Atlantshafsströndina. Upptök gróðureldanna við Madríd hófust á mörgum stöðum en eldarnir virðast nú sameinast í einn stóran eld, að sögn Kristjáns. „Einn af þeim sem stýra aðgerðum lét hafa eftir sér áðan að við núverandi aðstæður væri engin leið að stöðva eldana, heldur væri eingöngu hægt að hemja þá.“ Um helgina á hitastig að lækka við borgina en brátt nálgast önnur hitabylgja Evrópu. Loftslagsbreytingar hafa valdið því að öfgaveðuratburðir eru orðnir tíðari, að sögn þýska miðilsins Deutsche Welle. Gróðureldarnir í Evrópu hafa þegar slegið met þar sem um 10 þúsund hektarar hafa brunnið það sem af er ári sem er um tvisvar sinnum meira en það sem samsvarar meðaltali síðustu tveggja áratuga.
Spánn Íslendingar erlendis Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 Gróðureldar Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira