Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 27. júlí 2026 09:00 Sylvía og Dagný segja að hluti batans felist í að hætta að kenna sjálfum sér um. Samsett Sylvía Rún Guðnýjardóttir og Dagný Rut Kjartansdóttir ólust báðar upp í Grundarfirði og þekkjast frá barnæsku. Leiðir þeirra skildu um tíma en fyrr á þessu ári tengdust þær aftur. Fljótlega kom í ljós að þrátt fyrir ólíkar lífsleiðir áttu þær sameiginlega reynslu sem hvorug hafði gert sér grein fyrir að hin deildi.
Báðar höfðu þær leitað sér stuðnings hjá Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Þær segja að þjónustan hafi skipt sköpum, ekki aðeins vegna ráðgjafarinnar heldur einnig vegna þess að þar hafi þær fundið skilning, öryggi og staðfestingu á eigin upplifun. „Þegar við fórum að ræða lífið áttum við okkur á því hvað við höfðum gengið í gegnum margt svipað. Það skapaði sérstaka tengingu á milli okkar,“ segir Dagný. Þær leggja áherslu á að ofbeldi geti birst með margvíslegum hætti og að margir geri sér ekki grein fyrir því hversu djúp áhrif það getur haft. Þess vegna telja þær mikilvægt að fólk viti að hægt sé að leita sér aðstoðar áður en aðstæður verða óviðráðanlegar. „Það sem Bjarkarhlíð gaf mér var fyrst og fremst skilningur. Ég lærði að treysta eigin upplifun aftur og átta mig á því að maður þarf ekki að standa einn í svona aðstæðum,“ segir Sylvía.“ Vinkonurnar vonast til að aukA sýnileika Bjarkarhlíðar og hvetja fleiri til að leita sér aðstoðar.Aðsend Hjálpin er til staðar Þær segja að bataferlið hefjist ekki endilega þegar erfiðu tímabili lýkur. Oft taki þá við ný verkefni, að endurheimta sjálfstraust, byggja upp öryggi og kynnast sjálfum sér upp á nýtt. „Það er auðvelt að vera gagnrýninn á sjálfan sig eftir erfiða reynslu. Smám saman lærir maður þó að sýna sér meiri mildi og átta sig á því að maður er sterkari en maður hélt.“ Þær segja að vináttan hafi einnig reynst þeim mikilvægur hluti af bataferlinu. Þær hafi getað stutt hvor aðra, hlegið saman og rætt um lífið af hreinskilni. „Það skiptir ótrúlega miklu máli að eiga einhvern sem skilur án þess að maður þurfi að útskýra allt.“ Vinkonurnar ætla báðar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og safna áheitum fyrir Bjarkarhlíð. Fyrir þeim er það leið til að gefa til baka og styðja við starfsemi sem þær segja hafa skipt sköpum í lífi sínu. „Við viljum að fleiri viti að hjálpin er til staðar. Það getur verið erfitt að stíga fyrsta skrefið, en enginn ætti að þurfa að ganga í gegnum þetta einn.“ Þær vona að með þátttöku sinni geti þær aukið vitund um þjónustu Bjarkarhlíðar og hvatt fólk sem býr við erfiðar aðstæður til að leita sér stuðnings. „Við erum ekki að hlaupa vegna fortíðarinnar heldur vegna framtíðarinnar. Við viljum að fleiri fái tækifæri til að endurheimta öryggi, sjálfstraust og von.“ Hér má heita á Sylvíu og Dagnýju og styðja við starfsemi Bjarkahlíðar.
Reykjavíkurmaraþon Grundarfjörður Heimilisofbeldi Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Fleiri fréttir Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Sjá meira