Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Sunna Sæmundsdóttir skrifar 27. júlí 2026 12:04 Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir að huga þurfi að framkvæmdinni varðandi beitingu nálgunarbanns og rafræns eftirlits eftir lagabreytingu í vor. Vísir/Vilhelm Karlmaður er í gæsluvarðhaldi vegna stórfelldrar líkamsárásar gagnvart sambýliskonu sinni. Árásina framdi hann daginn eftir að hafa verið dæmdur í fangelsi fyrir ofbeldi gagnvart sömu konu. Talskona Stígamóta segir heimild til nálgunarbanns stórlega vannýtta og sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna.
Maðurinn var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald fyrr í mánuðinum eftir að hafa verið handtekinn hinn 7. júlí vegna gruns um að hafa beitt sambýliskonu sína alvarlegu ofbeldi. Hann er meðal annars grunaður um að hafa tekið um háls konunnar og þrýst í drjúga stund. Samkvæmt vottorði voru áverkar taldir benda til þess að árásin hafi verið lífshættuleg og lýsti konan því í skýrslutöku að hún hafi þurft að berjast fyrir lífi sínu. Daginn fyrir árásina hafði maðurinn verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir þrjár alvarlegar líkamsárásir gagnvart sömu konu. Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir sorglegt að ekki hafi tekist að vernda hana. „Þess ber að geta að ofbeldismenn eru hættulegastir þegar þeim eru sett mörk, hvort sem það er af brotaþolum þeirra eða af kerfinu sjálfu eins og í þessu tilviki. Hann hlýtur dóm og það má ætla að það hafi eitthvað að gera með árásina,“ segir Drífa. Hún bendir á að breytingar á lögum um nálgunarbann hafi verið samþykktar á Alþingi í vor og er lögreglu nú heimilt að beita rafrænu eftirliti með ökklabandi þegar einstaklingur sætir nálgunarbanni eða brottvísun af heimili. „Reyndin hefur verið sú að það hefur verið ofboðslegt hik í kerfinu varðandi það að nýta nálgunarbann sem úrræði og við höfum aldrei skilið það af því það er í raun bara verið að segja að þú mátt ekki tala við manneskju sem vill ekki eiga í samskiptum við þig. En þetta hefur þótt mjög íþyngjandi.“ Eftir lagabreytinguna í vor þurfi að huga að framkvæmdinni. „Það er eitt að setja lög og síðan er framkvæmdin allt annað. Og í þessu tilviki, eins og þetta mál lítur út fyrir mér, að þá er þetta alveg dæmigert mál þar sem hægt er að vernda brotaþola fyrir ofbeldismanni með slíku nálgunarbanni,“ segir Drífa. „Þannig við bara hvetjum valdhafa til þess að nýta þetta nýja úrræði og vernda fólk vegna þess að það sem við höfum lært í gegnum tíðina er að það eru menn í þessu samfélagi sem eru hættulegir og þarf að fylgjast sérstaklega vel með.“
Kynbundið ofbeldi Heimilisofbeldi Lögreglan Dómsmál Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Sjá meira