Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. júlí 2026 22:17 Hópurinn sem stendur að sýningunni Með allt á hreinu. Aftur á móti Bogi Ágústsson brá sér í hlutverk Sigurjóns digra í síðustu sýningunum af Með allt á hreinu. Er hann orðinn eins konar heiðursleikari sviðslistarhópsins Aftur á móti að sögn skipuleggjanda. „
Við ætluðum upprunalega að sýna einhverjar fimmtán sýningar en svo var eftirspurnin svo mikil að við bættum við aukasýningum,“ segir Kristinn Óli Haraldsson, betur þekktur sem Króli, en hann er einn forsvarsmanna sviðslistarhópsins Aftur á móti. Þetta er þriðja sumarið sem Aftur á móti tekur yfir Háskólabíó og setur á svið alls kyns sýningar. Ein þeirra er Með allt á hreinu sem er byggð á samnefndri kvikmynd. Eggert Þorleifsson sem fór með hlutverk Dúdda í kvikmyndinni steig á svið með hópnum í hlutverki Sigurjóns digra. Eggert Þorleifsson og Villi vandræðaskáld fóru með hlutverk í sýningunni.Aftur á móti „Þá kom í ljós að Eggert Þorleifsson, sem var búinn að leika með okkur Sigurjón digra, og gerði það alveg stórkostlega, myndi ekki komast þannig að við ákváðum að fá einhvern annan til að leika það og Bogi Ágústsson er svona heiðursleikari Aftur á móti,“ segir Kristinn. Bogi Ágústsson, fyrrverandi fréttamaður Rúv, steig fyrst á svið í fyrra þegar hann hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld. „Hann er náttúrulega Vesturbæingur í húð og hár og gamall bekkjarbróðir Eggerts, þannig að þá lá svona beinast við að heyra í honum og hann rúllaði þessu gjörsamlega upp.“ Bogi fékk handritið og lagið afhent samdægurs og sýndi tvær sýningar með hópnum. „Hann stóð sig með hreinni prýði, alveg frábær,“ segir Kristinn. „Það tók nú ekki langan tíma að sannfæra hann. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég hringi í hann og bið hann um að koma og leika eitthvað skrýtið hlutverk hérna í Háskólabíói.“ Ragga Gísla og Berglind Alda sem fóru báðar með hlutverk Hörpu Sjafnar.Aftur á móti „Við finnum okkur alltaf eitthvað að gera“ „Þetta er langstærsta sumarið hingað til, bæði hvað varðar fjölda sýninga og sömuleiðis áhorfendatölur. Við vissum ekki alveg hverju við máttum búast við frá því að við lögðum af stað í þetta. Þetta sprengdi alla væntingaskala okkar og það er gaman líka að fólk sé til í að mæta hérna yfir hásumarið og sitja inni í dimmum sal og horfa á okkur skemmta okkur,“ segir hann. „Það er nánast erfitt að geta ekki annað eftirspurn fyllilega, það voru færri sem komust að en vildu, sérstaklega á Með allt á hreinu en sömuleiðis aðrar sýningar eins og Ástarseyði Bergamólíós kroppinbaks.“ Aðspurður hvort hópurinn stefni á annað sumar í Háskólabíó hljómar Kristinn jákvæður. „Þetta var þriðja sumarið okkar þannig að það væri gaman að halda áfram og við munum halda áfram, hvort sem það er í formi sumarleikhúss í Háskólabíói eða einhvers annars, við finnum okkur alltaf eitthvað að gera.“
Leikhús Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira