Fólk megi lesa í ræðuna eins og það vilji Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. júlí 2026 15:18 Þórdís Kolbrún ætlar að halda áfram að halda úti hlaðvarpinu Flekaskil með Degi B. Eggertssyni eftir að hún tekur við sendiherrastöðunni. Vísir/Ragnar Axelsson Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir segist standa við hvert orð sem hún sagði í hátíðarræðu sinni í Skálholti þar sem hún sagði Ísland ekki eiga að þykjast vera of fínt til að íhuga aðild að Evrópusambandinu. Það sé hins vegar allt önnur umræða hvort að aðild sé rétti valkosturinn á þessum tímapunkti.
Ræða Þórdísar Kolbrúnar, fyrrverandi þingmanns og varaformanns Sjálfstæðisflokksins, á Skálholtshátíðinni hefur vakið töluverða athygli þar sem hún fór yfir stöðu alþjóðamála og vísaði í fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar talar hún um að Íslendingar verði að horfast í augu við þá staðreynd að breytingarnar sem eru að verða á valdaskipulagi heimsins gætu verið hættulegar Íslandi. „Sannleikurinn er sá að Ísland er enn í mikilli kjörstöðu í heiminum og enn eigum við um kosti að velja. Hvort við þurfum að taka ákvarðanir strax veit ég ekki, og ekki þykist ég vita fyrir víst hvaða ákvarðanir eru réttastar,“ sagði Þórdís í ræðunni sem hún birti á heimasíðunni sinni. Hún bendir á að fyrir mörg ríki sem eru þegar innan Evrópusambandsins sé samstarfið lykilþáttur í að verja fullveldi þeirra og að Úkraína vilji hljóta aðild vegna þessa. „Við skulum því ekki þykjast vera of fín til þess að íhuga hvort slík aðild sé valkostur fyrir Ísland. Að sjálfsögðu hlýtur hún að vera það. Það er svo allt annar handleggur hvort við teljum það vera besta kostinn sem völ er á. Því þurfa allir Íslendingar að fá næði til þess að velta fyrir sér og meta.“ Örstutt tímabil án ráðningarsamnings Þessi ræða var meðal þess sem var til umræðu í nýjasta þætti Flekaskila sem er í umsjón Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, og Þórdísar Kolbrúnar. Þar segist Þórdís sjálf hafa verið hissa á því hversu mikla athygli orð hennar fengu og hafi ákveðið að ræða hana ekki nánar fyrr en nú. „Ég var meðvituð um það og ég nefndi það í ræðunni að ég er ekki í ráðningarsambandi við neinn um stundir en flyt út eftir komandi föstudag,“ segir hún en Þórdís tekur við sendiherraembætti í Lundúnum í næstu viku. Vegna þessa hafi hún fengið örstutt tímabil til að tala um hlutina á öðruvísi hátt og segja hvað henni raunverulega finnst. „Ég hef almennt gert það og stundum verið gagnrýnd fyrir það en ég hef almennt verið einlæg í mínum störfum, svona það sem þið sjáið er það sem þið fáið.“ Vandaði sig við ræðuskrifin Þórdís telur að sú nálgun að telja Ísland of fínt, gott eða sterkt land til að ræða yfirhöfuð aðild að Evrópusambandinu sýni fram á skort á stærra samhengi um íslensku þjóðina, fullveldi landsins og sjálfstæði. „Ég bætti við að það sé allt annar handleggur hvort fólk telji að þetta sé réttur valkostur fyrir okkur núna eða hvað, en að láta eins og þetta sé ekki valkostur. Mér fannst ekki byltingarkennt að segja að við eigum ekki að þykjast vera of fín til að ræða þetta, þetta er bara valkostur og það er síðan undir hverjum og einum komið að gera upp hug sinn 29. ágúst,“ segir hún. „Auðvitað les fólk í það hver er að segja þetta en ég vandaði mig við þessa ræðu, þetta eru hlutir sem ég er búin að vera að hugsa um með einum eða öðrum hætti í nokkur ár og meinti hvert orð. Hún stendur fyrir sínu og fólk getur lesið í það sem það vill lesa í hana.“ Breytt heimsmynd eitthvað sem hugsa þarf um Þórdís segir að þegar hún gegndi embætti utanríkisráðherra hafi hún oft fengið spurningar um samstarf Íslands við aðrar þjóðir. „Ég hef í gegnum árin sagt að mín persónulega skoðun er að við þurfum ekki að ganga í Evrópusambandið, við erum með EES-samninginn og hann er svona rjóminn í þessu. Hann hefur gert okkur kleift að auka lífskjör okkar, lífsgæði og frelsi og við höfum tekið inn umbætur og alls konar hluti í gegnum það,“ segir hún og bætir við að hún kunni illa við það þegar menn reyni að grafa undan EES-sambandinu. Hins vegar telur Þórdís að ef hún væri fulltrúi í Eystrasaltsríki eða Póllandi myndi hún horfa öðruvísi á málið. Heimurinn sé hægt og rólega að færast í þá átt að fullveldi ríkja hafi áhrif á Evrópusamstarf þeirra. „Hvort sem okkur líkar það betur eða verr, þetta er eitthvað sem við þurfum að hugsa um.“ Þórdís segist aldrei hafa látið eins og hún viti hvernig heimsmyndin muni þróast en biðlar til Íslendinga um að bera virðingu fyrir sjálfum sér og vera meðvitaðir um óvissuna. Þá segist hún ekki heldur vita fyrir víst hvaða valkostur sé bestu fyrir Ísland núna. „Uppleggið er að fólk hafi færi á að kynna sér hluti og vega og meta út frá eigin sannfæringu og greiða um þá atkvæði þar sem öll atkvæði eru jöfn.“ Í kjölfar þess að Þórdís flutti ræðuna reyndi fréttastofa að ná af henni tali en hún baðst undan viðtali.
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Fleiri fréttir Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna Sjá meira