Hefur aldrei haldið á Ólympíugullinu sínu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2026 08:43 Nzesso hefur unnið brons á EM fyrir Bretland en hún vann Ólympíugull fyrir Kamerún. @britishwl Hún er Ólympíumeistari en hefur aldrei fengið að handleika gullverðlaunapeninginn sinn. Lyftingakonan Madias Nzesso á mjög svo sérstaka sögu þegar kemur að Ólympíusigri hennar í London 2012.
Madias Nzesso sjálfa grunar að umrædd Ólympíugullverðlaun séu einhvers staðar í skúffu í höfuðborg Kamerún. Hún fékk þau sjö árum of seint, eftir að þrjár lyftingakonur sem enduðu ofar henni á Ólympíuleikunum í London 2012 voru dæmdar úr leik fyrir lyfjamisnotkun. Nzesso hefur aldrei haldið á þessum verðlaunum, þar sem hún hefur ekki snúið aftur til heimalands síns á þeim fjórtán árum sem liðin eru frá því hún kom fyrst til Bretlands. Nzesso, sem nú býr í Nottingham, hafði ekki ætlað sér að vera um kyrrt en þurfti að taka stóra ákvörðun því á meðan á leikunum stóð varð kynhneigð hennar kunn. Þar sem samkynhneigð er ólögleg í Kamerún og varðar fangelsi, var það raunverulegur ótti um líf sitt sem rak þessa þá tvítugu konu til að stinga af úr Ólympíuþorpinu. „Eftir að ég lauk keppni árið 2012 var ekki auðvelt að vera um kyrrt, en ég varð að taka ákvörðun fyrir öryggi mitt, fyrir framtíð mína, því ég sá að ég átti mér enga framtíð lengur í Kamerún,“ sagði Nzesso við breska ríkisútvarpið. „Ég er lesbía, ég elska konur og það er ekki leyfilegt í Kamerún. Ég varð að vera hér til að eiga góða framtíð, gott líf og ekki skaða sjálfa mig ef ég tæki þá ákvörðun að eignast kærustu,“ sagði Nzesso. Þótt hún hafi fengið ákveðið skjól með því að forðast að snúa aftur til afrísku þjóðarinnar var reynsla hennar næstu mánuði langt frá þeim „glæsilegu“ tveimur vikum sem hún hafði upplifað á Ólympíuleikunum. Án vina, heimilis og peninga verður hún næstu mánuðum að mestu leyti á götunni. Nú, fjórtán árum eftir Ólympíuleikana í London 2012, mun Nzesso snúa aftur á stóran íþróttaviðburð þegar hún keppir á Samveldisleikunum í Glasgow 2026 fyrir nýja heimaland sitt, England. „Þessi stund þýðir mikið fyrir mig,“ sagði lyftingakonan, sem vann brons á Evrópumeistaramótinu fyrir Breta fyrr á þessu ári. „Að enska liðið hafi gefið mér þetta annað tækifæri, það er magnað,“ sagði Nzesso.
Lyftingar Ólympíuleikar Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Íslenski boltinn Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu ÍBV samdi við bandarískan hermann Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Dagskráin í dag: Golf, Formúla og Hollywood Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Sjá meira