Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Áróra L Davíðsdóttir skrifar 30. júlí 2026 13:52 Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru líklegri til að greiða atkvæði með framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið en íbúar landsbyggðarinnar. Vísir/Lýður Valberg Meirihluti þeirra sem taka afstöðu til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið ætlar að segja já í ágúst. Elsti aldurshópurinn er líklegastur til þess að greiða atkvæði með aðildarviðræðunum.
Í nýrri könnun Maskínu fyrir DV sem fór fram dagana 22. til 29. júlí kemur fram að 53 prósent þeirra sem taka afstöðu í könnuninni ætla að segja já en 47 prósent ætla að segja nei. Þegar þeir sem ekki tóku afstöðu eru teknir með í reikninginn ætla 43,8 prósent að segja já og 38,9 prósent að segja nei. 13,5 prósent svöruðu „Ég veit ekki“ og 3,8 prósent sögðust ekki vilja svara. Elsti aldursflokkurinn, 70 ára og eldri, er líklegastur til þess að segja já samkvæmt könnuninni en næstelsti, 60 til 69 ára, er ólíklegastur, eða 48,7 prósent. Næstjákvæðastur í garð aðildarviðræðna við Evrópusambandið er yngsti aldursflokkurinn, 18-29 ára, en 56,7 prósent þeirra segjast ætla að segja já. Lítill munur er á svörum milli kynjanna en 52,3 prósent karla segjast ætla að greiða atkvæði með áframhaldandi aðildarviðræðum og 53,7 prósent kvenna. 91 prósent kjósenda Miðflokksins hyggst segja nei Þeir sem kysu Samfylkinguna og Viðreisn ef gengið væri til kosninga í dag eru líklegastir til þess að segja já. 94,7 prósent þeirra sem kysu Samfylkinguna ætla að segja já og 95,8 prósent þeirra sem hygðust kjósa Viðreisn. 53,3 prósent þeirra sem kysu Flokk fólksins eru jákvæðir í garð áframhaldandi aðildarviðræðna. Þeir sem myndu kjósa Miðflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn ef gengið væri til kosninga í dag eru líklegastir til að segja nei. 91 prósent þeirra sem kysu Miðflokkinn hyggst segja nei og 86,6 prósent þeirra sem kysu Sjálfstæðisflokkinn. Reykvíkingar eru líklegastir til að segja já, eða 61,4 prósent þeirra, og nágrannasveitarfélög Reykjavíkur fylgja þar á eftir, næstlíklegust, eða 54,6 prósent. Á Austurlandi segjast 68,2 prósent neikvæð í garð aðildarviðræðna og 66,6 prósent á Vesturlandi og Vestfjörðum. Í síðustu könnun var andstaðan mest meðal elsta aldurshópsins Lítil breyting er á svörum fólks frá því í síðustu könnun Maskínu fyrir DV í þann 13. júní síðastliðinn. Ef einungis er horft til þeirra sem tóku afstöðu í þeirri könnun sögðust 53,1 prósent vera jákvæðir en 46,9 prósent andvígir. Þá mældist andstaða við framhald aðildarviðræðna mest meðal elsta aldurshópsins, eldri en 70 ára. Í könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið þann 10. júní sagðist meirihluti þeirra sem tóku afstöðu vera andvígur aðild Íslands að Evrópusambandinu. Kjósendur Samfylkingarinnar og Viðreisnar sögðust þá hlynntastir inngöngu, eða alls 72 prósent beggja flokka.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Skoðanakannanir Utanríkismál Evrópusambandið Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira