Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Jakob Bjarnar skrifar 31. júlí 2026 10:05 Magga Stína var meðal þeirra listamanna sem kom fram við útför Megasar sem var nú síðdegis. vísir/lýður valberg Magnús Þór Jónsson (1945–2026) eða Megas var jarðsunginn í fallegri og áhrifaríkri athöfn í Hallgrímskirkju í gær. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir jarðsöng en fjöldi listamanna kom fram við athöfnina.
Megas lést á hjúkrunarheimilinu Grund þann 6. júlí síðastliðinn, 81 árs gamall. Hann var einn áhrifamesti tónlistar- og kvæðamaður íslensks samtíma og hafði ómæld áhrif á íslenska tungu, dægurmenningu og tónlist. Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður var meðal þeirra sem voru viðstaddir og hann sagði kveðjustundina hrífandi. „Enginn, bara alls enginn íslenskur listamaður hefur verið mér mikilvægari allt frá því ég kynntist honum fyrst á plötunni Millilendingu 1975 — þar var þetta allt þegar lifandi komið, húmorinn, leikurinn, hugkvæmnin og kvikindisskapurinn, orðkyngin, orðlistin, einlægnin, hæðnin, nístandi sorgin og lífsneistinn samt í söng silfurskottanna,“ segir Illugi á Facebook-síðu sinni. Illugi segist lengi verið þeirrar skoðunar að eina manneskja sem syngi „Megas betur en Megas“ sé Magga Stína og hún hafi staðfest það með túlkun sinni á Óþarflegri fundvísi Ingólfs Arnarsonar. Þá lauk Illugi upp sérstöku lofsorði á flutningi á Passíusálminum með Ragnar Kjartansson fremstan í flokki. Séra Auður Eir sagði meðal annars að maður þekkti varla sitt eigið hjarta, hvað þá annarra, en hún stiklaði á stóru þegar lífshlaup Megasar var annars vegar. Óttar Guðmundsson læknir flutti kveðjuorð og rakti þar meðal annars þætti úr brokkgengu lífi þeirra beggja. Óttar sagði meðal annars að almenningsálitið væri hverfult og lítt væri hægt að stóla á það. „Síðustu árin voru Magnúsi erfið. Heilsan bilaði og margir sneru við honum baki. Hann bar sig þó oftast vel, enda vissi hann að almenningshylli er kynleg skepna sem sníst eins og skopparakringla eftir eigin lögmálum,“ sagði Óttar. Með fullri virðingu fyrir öðrum hæfileikum Megasar en hann var drátthagur og ritfær var tónlistarmaðurinn fyrirferðamestur og athöfnin bar dám af því. Hrynsveit skipuð þeim Skúla Sverrissyni, Guðmundi Péturssyni, Davíð Þór Jónssyni, Daníel Friðrik Böðvarssyni og Magnúsi Trygvasyni Elíassen lék auk strengjakvartetts sem þær Sigrún Eðvaldsdóttir, Auður Hafsteinsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Bryndís Halla Gylfadóttir skipuðu. Stúlknakór undir stjórn Hilmars Arnars Agnarssonar söng auk meðlima úr Caput undir stjórn Guðna Franzsonar. Einsöngvarar voru Magga Stína, Ólöf Arnalds, María Sól Ingólfsdóttir og Ragnar Kjartansson. Að neðan má sjá upptöku af útförinni í heild sinni.
Andlát Tónlist Bókmenntir Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira