Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Magnús Jochum Pálsson skrifar 31. júlí 2026 15:20 Guðjón Þorgils sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna og syngur lag Hinsegin daga. Söngvarinn Guðjón Þorgils Kristjánsson, sem sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna fyrr á árinu, flytur lag Hinsegin daga í ár. Lagið „Framávið“ er áminning til þeirra sem hafa ratað af réttri braut um að aldrei sé of seint að snúa við. Sandgerðingurinn Guðjón Þorgils býr yfir gríðaröflugri söngrödd og er rísandi stjarna í íslensku tónlistarlífi eftir að hafa sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna 2026 með laginu „Ég skil ekki neitt“. Hann var í kjölfarið fenginn til að syngja lag Hinsegin daga sem hann samdi sjálfur ásamt Axel Inga Árnasyni og Ingu Auðbjörgu K. Straumland. Lagið „Framávið“ kom út í gær en það er áminning til þeirra sem hafa ratað af réttri braut um að aldrei sé of seint að snúa við og láta hjartað ráða för. Yfirskrift Hinsegin daga í ár er „Sameinumst undir regnboganum“ og lag Guðjóns blæs hinsegin fólki og stuðningsfólki þeirra í brjóst og hvetur þau til að standa saman gegn úrtöluröddum. Hlusta má á lagið hér að neðan: Hinsegin dagar hefjast í hádeginu á þriðjudaginn með setningu á tjarnarbakkanum við Iðnó. Gleðigangan er sem fyrr hápunktur Hinsegin daga og gengið verður klukkan 14 laugardaginn 8. ágúst frá Hallgrímskirkju að Hljómskálagarði. „Framávið“ er komið á allar helstu streymisveitur og má sjá texta þess hér að neðan: Framávið Hvar finnurðu til? Hver kvaldi þig? Hvaðan berst verkurinn, vinur? Hvað ógnaði þér? Ögraði þér? Hvað gerist ef heimur þinn hrynur? Þú heldur kannski að leiðin til baka sé lokuð úr þessari átt. Hvað ef þér fyndist þér heimilt að taka, að endingu sjálft þig í sátt? Berst, brotið og sárt. Dapurt og smátt. Hrópar í tómið og hræðist. Leit, leiðin er löng, torfarin, ströng. Sérðu að veðrið það glæðist? Þú heldur kannski að leiðin til baka sé lokuð úr þessari átt. Hvað ef þér fyndist þér heimilt að taka, að endingu sjálft þig í sátt? Nú set ég fótinn niður. Ég segi stopp. ég ber í borðið, þett’er komið gott. Hingað og ekki lengra, staldraðu við. Því rétta leiðin liggur framávið. Rót, fíngerð, en föst. Röggsöm ef móti blæs. Fortíðin flækir margt. Lauf, blaktandi blær, grímulaust grær, horfir í storminn, djarft. Við setjum fótinn niður. Við setjum fótinn niður. Því rétta leiðin liggur framávið. :/: Við setjum fótinn niður. Við setjum fótinn niður. Því rétta leiðin liggur framávið. :/: Hingað og ekki lengra, staldraðu við. Því rétta leiðin liggur framávið. Nú set ég fótinn niður. Ég segi stopp. ég ber í borðið, þett’er komið gott. Hingað og ekki lengra, staldraðu við. Því rétta leiðin liggur framávið. óóóóo…. Því rétta leiðin liggur framávið Hinsegin Tónlist Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Fleiri fréttir Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Sandgerðingurinn Guðjón Þorgils býr yfir gríðaröflugri söngrödd og er rísandi stjarna í íslensku tónlistarlífi eftir að hafa sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna 2026 með laginu „Ég skil ekki neitt“. Hann var í kjölfarið fenginn til að syngja lag Hinsegin daga sem hann samdi sjálfur ásamt Axel Inga Árnasyni og Ingu Auðbjörgu K. Straumland. Lagið „Framávið“ kom út í gær en það er áminning til þeirra sem hafa ratað af réttri braut um að aldrei sé of seint að snúa við og láta hjartað ráða för. Yfirskrift Hinsegin daga í ár er „Sameinumst undir regnboganum“ og lag Guðjóns blæs hinsegin fólki og stuðningsfólki þeirra í brjóst og hvetur þau til að standa saman gegn úrtöluröddum. Hlusta má á lagið hér að neðan: Hinsegin dagar hefjast í hádeginu á þriðjudaginn með setningu á tjarnarbakkanum við Iðnó. Gleðigangan er sem fyrr hápunktur Hinsegin daga og gengið verður klukkan 14 laugardaginn 8. ágúst frá Hallgrímskirkju að Hljómskálagarði. „Framávið“ er komið á allar helstu streymisveitur og má sjá texta þess hér að neðan: Framávið Hvar finnurðu til? Hver kvaldi þig? Hvaðan berst verkurinn, vinur? Hvað ógnaði þér? Ögraði þér? Hvað gerist ef heimur þinn hrynur? Þú heldur kannski að leiðin til baka sé lokuð úr þessari átt. Hvað ef þér fyndist þér heimilt að taka, að endingu sjálft þig í sátt? Berst, brotið og sárt. Dapurt og smátt. Hrópar í tómið og hræðist. Leit, leiðin er löng, torfarin, ströng. Sérðu að veðrið það glæðist? Þú heldur kannski að leiðin til baka sé lokuð úr þessari átt. Hvað ef þér fyndist þér heimilt að taka, að endingu sjálft þig í sátt? Nú set ég fótinn niður. Ég segi stopp. ég ber í borðið, þett’er komið gott. Hingað og ekki lengra, staldraðu við. Því rétta leiðin liggur framávið. Rót, fíngerð, en föst. Röggsöm ef móti blæs. Fortíðin flækir margt. Lauf, blaktandi blær, grímulaust grær, horfir í storminn, djarft. Við setjum fótinn niður. Við setjum fótinn niður. Því rétta leiðin liggur framávið. :/: Við setjum fótinn niður. Við setjum fótinn niður. Því rétta leiðin liggur framávið. :/: Hingað og ekki lengra, staldraðu við. Því rétta leiðin liggur framávið. Nú set ég fótinn niður. Ég segi stopp. ég ber í borðið, þett’er komið gott. Hingað og ekki lengra, staldraðu við. Því rétta leiðin liggur framávið. óóóóo…. Því rétta leiðin liggur framávið
Framávið Hvar finnurðu til? Hver kvaldi þig? Hvaðan berst verkurinn, vinur? Hvað ógnaði þér? Ögraði þér? Hvað gerist ef heimur þinn hrynur? Þú heldur kannski að leiðin til baka sé lokuð úr þessari átt. Hvað ef þér fyndist þér heimilt að taka, að endingu sjálft þig í sátt? Berst, brotið og sárt. Dapurt og smátt. Hrópar í tómið og hræðist. Leit, leiðin er löng, torfarin, ströng. Sérðu að veðrið það glæðist? Þú heldur kannski að leiðin til baka sé lokuð úr þessari átt. Hvað ef þér fyndist þér heimilt að taka, að endingu sjálft þig í sátt? Nú set ég fótinn niður. Ég segi stopp. ég ber í borðið, þett’er komið gott. Hingað og ekki lengra, staldraðu við. Því rétta leiðin liggur framávið. Rót, fíngerð, en föst. Röggsöm ef móti blæs. Fortíðin flækir margt. Lauf, blaktandi blær, grímulaust grær, horfir í storminn, djarft. Við setjum fótinn niður. Við setjum fótinn niður. Því rétta leiðin liggur framávið. :/: Við setjum fótinn niður. Við setjum fótinn niður. Því rétta leiðin liggur framávið. :/: Hingað og ekki lengra, staldraðu við. Því rétta leiðin liggur framávið. Nú set ég fótinn niður. Ég segi stopp. ég ber í borðið, þett’er komið gott. Hingað og ekki lengra, staldraðu við. Því rétta leiðin liggur framávið. óóóóo…. Því rétta leiðin liggur framávið
Hinsegin Tónlist Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Fleiri fréttir Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið