Innlent

Guð­mundur Felix kominn með krabba­mein

Eiður Þór Árnason skrifar
Guðmundur Felix Grétarsson með nýju handleggina sína.
Guðmundur Felix Grétarsson með nýju handleggina sína. Vísir/Vilhelm

Guðmundur Felix Grétarsson hefur greinst með krabbamein í nefi og gerir ráð fyrir því að það þurfi að fjarlægja það. Hann fékk fregnirnar í fyrradag. 

„Það er búið að taka sýni úr því og þetta er svolítið aggressívt. Ég er búinn að fara í segulómtæki sem sýndi að þetta væri bara staðbundið, komið að beininu og brjóskinu en ekki í gegnum það.

Þannig að þeir gera ráð fyrir að taka af nefið og sentímeter umfram svo það er nefið og aðeins af vörinni,“ segir hann í samtali við Vísi. Ekki séu vísbendingar um að krabbameinið hafi dreift sér um líkamann en hann eigi eftir að fara í jáeindaskanna til að staðfesta þessa tilgátu læknanna.

„Það leit ekki út fyrir það en þeir vilja test til vonar og vara að vera algjörlega hundrað prósent á því hvort það þurfi eitthvað meira en að skera þetta af.“

Berst við þetta eins og hvert annað

Guðmundur hefur vakið athygli fyrir það hvernig hann tókst á við það að missa handleggi sína í slysi árið 1998 en hann hefur öðlast nýtt líf eftir að handleggir voru græddir á hann í tímamótalæknisaðgerð.

Hann segist í samtali við Vísi hafa verið á góðu róli að undanförnu, hafa stofnað fyrirtæki og þetta setji mögulega strik í reikninginn. Þrátt fyrir það er hann jákvæður og hyggst takast á við þetta eins og aðrar áskoranir í sínu lífi.

„Þetta er bara það sem það er. Það eru það margir í mínu lífi sem mér þykir vænt um að það er bara ekkert í boði að vera eitthvað að gefast upp. Maður berst við þetta eins og hvað annað.“

Fréttin er í vinnslu og von er á ítarlegra viðtali við Guðmund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×