Golf

Donald Trump tók við verð­launum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli

Andri Broddason skrifar
Donald Trump hefur spilað mikið golf á sinni lífsleið og hættir því ekki þó að hann sé forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump hefur spilað mikið golf á sinni lífsleið og hættir því ekki þó að hann sé forseti Bandaríkjanna. Andrew Harnik/Getty Images

Donald Trump Bandaríkjaforseti tók á móti tveimur verðlaunum á klúbbmeistaramóti Bedminster. Þar er hans eigin golfvöllur og tók hann við verðlaunum sem klúbbmeistari öldungaflokks og sem heildarklúbbmeistari.

Við verðlaunaafhendingu á klúbbmeistaramótinu á Donald Trump-vellinum í Bedminster var tilkynnt að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði farið völlinn á 70 höggum og varð þar með klúbbmeistari. Hann vann ekki einungis öldungaflokkinn heldur var hann einnig á lægsta höggafjölda allra sem tóku þátt í mótinu.

Þetta eru fertugustu titlar hans á sínum eigin völlum en hann á fimmtán golfvelli um allan heim. Á síðasta ári varð hann einnig klúbbmeistari í Bedminster en þá fór hann hringinn á 69 höggum.

Þetta er frábært skor hjá Bandaríkjaforsetanum en einhverjir draga í efa að hann geti spilað svona vel. Trump er áttræður og hefur sjálfur sagt að hann sé á toppi golfferilsins síns. Íþróttafréttamaðurinn Rick Riley hefur ásakað Trump um að svindla á golfvellinum og eru aðrir á sama máli.

Reynst hefur erfitt að sanna hvort að Trump hafi náð svona lágu skori eða ekki en það hentar að vera eigandi klúbbs þar sem þú vinnur alla þína titla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×