Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda Sigurgeir Þorkelsson skrifar 5. ágúst 2026 17:45 Lögregla hafði í ýmsu að snúast í dag. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Húsráðandi á Seltjarnarnesi lenti illa í dósaþjófi sem ráfaði um garð sinn. Eftir að hafa tilkynnt konuna, sem vígbúin var dósum og öðru slíku, til lögreglu hélt húsráðandi út í garðinn og reyndi að ræða við konuna. Hún brást þá hin versta við og hótaði að bíta hann.
Lögreglu tókst ekki að ljúka málinu á staðnum þar sem dósaþjófurinn neitaði að gefa upp deili á sér. Hún var því handtekin og færð í fangageymslu. Þá var lögregla kölluð til vegna aðila sem voru til óskunda á hóteli í miðbæ Reykjavíkur. Höfðu þeir komið sér fyrir á stigagangi hótelsins og voru til leiðinda. Var þeim vísað af staðnum af lögreglu og var málinu þar með lokið. Vinnuslys varð í Laugardal þar sem maður slasaðist á fæti og var lögregla kölluð til, að því er kemur fram í dagbók lögreglu. Má því leiða líkur að því að um alvarlegt slys hafi verið að ræða. Í póstnúmeri 108, sem inniheldur meðal annars Háaleiti og Suðurlandsbraut, ógnaði maður starfsfólki fyrirtækis og þurfti að kalla til lögreglu til að fjarlægja hann. Þá þurfti lögregla einnig að sinna útkalli í hverfi 103, sem inniheldur meðal annars Kringluna, vegna þjófnaðar úr verslun. Við eftirgrennslan lögreglu fundust fíkniefni á meintum þjófi. Annars staðar á höfuðborgarsvæðinu sinnti lögregla að miklu leyti umferðarlagabrotum. Í Kópavogi var ökumaður stoppaður á 93 kílómetrum á klukkustund þar sem hámarkshraði var fimmtíu og í Hafnarfirði var ökumaður án ökuréttinda stoppaður. Var það í fjórða skiptið sem sá hinn sami er stöðvaður.
Seltjarnarnes Reykjavík Kópavogur Hafnarfjörður Lögreglumál Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira