Innlent

Klukku­stundar löng röð í öryggisleitina: „Fólk er annað­hvort mjög stressað eða mjög ró­legt“

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Búið er að bæta við merkingum í brottfararslanum til að hafa stjórn á röðinni.
Búið er að bæta við merkingum í brottfararslanum til að hafa stjórn á röðinni. Aðsend

Töluverð röð er í öryggisleitina á Keflavíkurflugvelli samkvæmt ábendingum sem borist hafa fréttastofu. Fréttastofa náði tali af einum farþega sem var á hlaupum í gegnum flugvöllinn eftir klukkustundar bið.

Á myndum má sjá að röðin í öryggisleitina teygir sig niður stigann á fyrstu hæðina og í gegnum brottfararsalinn að útganginum þar sem farþegarnir koma alla jafna inn.

Ert þú að bíða í röðinni? Við tökum á móti frásögnum og myndum í fréttaskoti eða á ritstjorn@visir.is.


Rakhee Bharj, sem er á leiðinni til London en býr á Íslandi, er meðal þeirra sem þurftu að bíða í röðinni. Í samtali við fréttastofu segir Rakhee að hún hafi beðið í klukkustund eftir því að komast að öryggisleitinni og var akkúrat komin fremst í röðina þegar fréttastofa náði tali af henni.

Það tók hana fjörutíu mínútur að komast að stiganum upp á aðra hæð.

„Þetta tekur venjulega hálftíma, ég er vön því að strunsa bara beint í gegn,“ segir Rakhee. 

„Stemningin er smá skrýtin, fólk er annaðhvort mjög stressað eða mjög rólegt.“

Hún óttast að missa af fluginu sínu, sem á að fara klukkan 8:30 en fréttastofa talaði við hana klukkan átta. Þá átti hún enn þá eftir að fara í gegnum landamæraeftirlitið. Þegar símtalinu lauk var Rakhee að hlaupa í gegnum flugvöllinn að reyna að komast að eftirlitinu.

Hún hljómaði samt sem áður bjartsýn.

„Þetta ætti að vera í lagi, öryggisvörðurinn sagði að þar væri um fimmtán mínútna bið.“

Töluvert hefur verið fjallað um raðir á flugvellinum undanfarnar vikur en það á við um öryggisleit þeirra sem lenda á Keflavíkurflugvelli í kjölfar innleiðingar nýs kerfis í landamæraeftirliti.

Ekki bætti úr skák að áður en Rakhee fór í röðina biluðu farangursbeltin og tók um fimm til tíu mínútur að laga þau. Samkvæmt heimasíðu Isavia eiga 28 flugvélar að yfirgefa flugvöllinn á milli klukkan átta og tíu.

Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallaþróunar og innviða á Keflavíkurflugvelli, sagði í viðtali í Reykjavík að til stæði að innleiða nýjan öryggisleitarbúnað á flugvellinum. Heildarlausnin hefur verið boðin út.

Um er að ræða þróaðan búnað svo til dæmis er hægt að greina meiri vökva.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×