Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 9. ágúst 2026 14:18 Sindri „Sparkle“ Freyja er grínisti, leikkona og skáld. Samsett Hópur manna kastaði grjóti í átt að grínista og leikkonu sem var á leið sinni heim af Gleðigöngunni í gær í Vesturbæ Reykjavíkur. Atvikið hafi ekki verið í fyrsta sinn sem hún lendir í slíkri árás en bakslag í málefnum hinsegin fólks sé raunverulegt og samfélaginu beri skylda að bregðast við.
Hún hafi verið á leið heim af Gleðigöngunni með eiginmanni sínum. Þau hafi verið „ótrúlega sátt eftir daginn“ og voru klædd í brúðarfötin sín, enda nýgift. Þau hafi verið á göngu um gamlar heimaslóðir sínar hjá Stúdentagörðum á Sæmundargötu þegar hópur manna hóf grjótkast í átt hjónanna. „Ég bara hugsaði: Já, heimilið. Þetta er staðurinn þar sem við urðum ástfangin. Ég er bara í mínum eigin heimi þegar ég heyri manninn minn öskra nafnið mitt og síðan heyri ég stein splundrast á jörðinni við hliðina á mér. Hann fór bara hálfum metra frá höfðinu mínu,“ segir Sindri Freyja Bjarnabur, eða Sindri „Sparkle“ eins og hún er oft kölluð, í samtali við fréttamann Vísis. Mennirnir hafi verið fimm talsins og um tvítugt. „Þetta litar bara allan daginn, þetta litar kjólinn sem ég var í, þetta litar minningar um gamla heimilið okkar allt í einu. Þetta var er rosalega sárt,“ segir hún. Atvikið sé ekki í fyrsta og ekki annað skiptið sem hún lendir í slíkri árás. Síðast fyrir tveimur vikum hafi maður á hjólabretti veist að hjónunum og sagt þau vera djöfla. Alls hafi hún fjórum sinnum lent í atvikum á Íslandi þar sem henni er ógnað eða henni beitt ofbeldi. Síðast í fyrradag hafi vinkona hennar, trans kona, orðið fyrir árás og lent á sjúkrahúsi með áverka í kjölfarið. „Hún var barin niður í götuna og öskrað yfir hana „faggi“ á meðan. En það var svo ótrúlega fallegt og djarft að sjá hana síðan bara í göngunni daginn eftir.“ Nákvæmlega ástæðan fyrir því að er gengið Gleðigangan sé fyrst og fremst kröfuganga. „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum. Þetta eru mótmæli, þetta er ekki fjölskylduhátíð. Það náttúrulega er gleði í gleðigöngunni, á sama tíma þá verðum við að skilja það að það er ekki allt komið.“ Mikilvægt sé að fólk sýni ekki aðeins stuðning einu sinni á ári þegar Hinsegin dagar eða Gleðigangan fari fram. Baráttan sé stöðug og hluti af hversdegi hinsegin fólks. Hún hefur eftir vinkonu sinni: „Hinsegin fólk er ekki jólasveinar sem birtast einu sinni á ári og fara svo til fjalla. Fólk áttar sig ekki á því að við erum að díla við þetta daglega.“ „Við verðum að leyfa öllum að lifa, líka þeim sem eru skrítin“ Ofbeldi og hótanir í garð hinsegin fólks séu að aukast hérlendis. Umræðan síðastliðin tvö ár virðist gefa fólki leyfi til þess að ráðast á fólk. „Það fyrsta sem fólk spyr mig að er alltaf hvort þetta hafi verið Íslendingar. Fólk langar svo mikið að heyra að svona sé eitthvað sem komi annars staðar frá, að svona gerist ekki á Íslandi.“ Samfélagið standi saman og bregðist við bakslagi sem sé að eiga sér stað í málefnum hinsegin fólks. „Þú getur ekki sýnt hatri umburðarlyndi,“ segir Sindri Freyja og bætir við „ef þú ert ekki sem sagt að berjast á móti því þá ertu í rauninni að standa með því.“ Oft sé hatursfullri orðræðu skýlt á bak við skoðana- og málfrelsi. Hún segir að ekki sé hægt að mæta öfgafullum skoðunum í miðjunni. „Það er enginn að reyna að banna neinum neitt eða að reyna að skerða málfrelsi neins. Það er bara þannig að friðhelgi manneskjunnar verður að trompa einhverja skoðun. „Við verðum bara að leyfa öllum að lifa, líka þeim sem eru skrítin. Ég klæði mig eins og trúður í daglegu lífi og er litaglöð. Ég vil ekkert vera að dempa mig fyrir almenningi en það þýðir ekki að það megi grýta mig,“ segir hún.
Hinsegin Gleðigangan Reykjavík Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira