Áhorfendur í áfalli eftir að leikmaður hrundi niður göng Valur Páll Eiríksson skrifar 10. ágúst 2026 07:02 Jacy eftir fallið. Hann var blessunarlega heill eftir óhugnalegt atvikið. Skjáskot Áhorfendur leiks Chapecoense og Coritiba í brasilíska fótboltanum fengu áfall í gær er leikmaður Coritiba hrundi niður leikmannagöng er hann fagnaði marki. Blessunarlega fór betur en áhorfðist.
Hinn 29 ára gamli Jacy, varnarmaður Coritiba, hoppaði yfir auglýsingaskilti en hvarf niður göng sem innbyggð eru í leikvanginn, og liggja til búningsherbergja á heimavelli Chapecoense. Leikmaðurinn Jacy hreinlega hvarf ofan í jörðina.Skjáskot Flötur er settur yfir göngin á meðan leik stendur en vallarstarfsmenn höfðu opnað þau þar sem téð mark var skorað rétt áður en fyrri hálfleik lauk. Liðsfélagar Jacy þeyttust að göngunum til að athuga að félaga sínum, en hann birtist aftur skömmu eftir að hafa hreinlega horfið ofan í jörðina. Læknar meðhöndluðu varnarmanninn á meðan jafnaði sig. Ten co zrobił pic.twitter.com/L0gRpOzsVU— ɢʀᴇɢᴏʀ (@gregor_konop) August 9, 2026 Til að bæta gráu ofan á svart var markið sem Jacy skoraði, og ætlaði að fagna svo svakalega, ekki dæmt gilt. Myndbandsdómarar tóku það af vegna rangstöðu. Jacy foi para o vestiário mais cedo, triste.😂😂😂#jacy #coritiba #chapecoense pic.twitter.com/A8QjCPI04o— M²F (@M_a_r_c_3_l_o) August 9, 2026 Jacy gat klárað hálfleikinn en var skipt af velli skömmu eftir að síðari hálfleikur hófst. Það að hverfa ofan í jörðina hafði tekið sinn toll. Rapaz, o melhor ângulo kkkkO Jacy caindo no túnel, a torcida em desespero e depois ele saindo como se nada tivesse acontecido e continuando a comemoração 🤣 pic.twitter.com/3F39M3vlzn— Lázaro Rosa 🇧🇷 (@lazarorosa25) August 9, 2026 Blessunarlega fyrir hann vann Coritiba 2-1 sigur á Chapecoense í leiknum. Myndskeið af atvikinu má sjá í spilurunum að ofan.
Brasilía Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjá meira