Erlent

Harður jarð­skjálfti skók Kólumbíu og Ekvador

Kjartan Kjartansson skrifar
Fólk þusti út á götur úr byggingum eftir að jarðskjálftinn fannst í Bogotá, höfuðborg Kólumbíu. Hún er í rfílega fjögur hundruð kílómetra fjarlægð frá upptökum jarðskjálftans.
Fólk þusti út á götur úr byggingum eftir að jarðskjálftinn fannst í Bogotá, höfuðborg Kólumbíu. Hún er í rfílega fjögur hundruð kílómetra fjarlægð frá upptökum jarðskjálftans. AP/Iván Valencia

Jarðskjálfti af stærðinni 7,4 skók vestanverða Kólumbíu og nágrannaríkið Ekvador í dag. Fólk er sagt hafa slasast og mikið tjón orðið á byggingum við upptök jarðskjálftans.

Upptök skjálftans voru á rúmlega hundrað kílómetra dýpi undir San José del Palmar í Choco-héraði, um fjögur hundruð kílómetra vestur af kólumbísku höfuðborginni Bogotá, samkvæmt bandarísku og kólumbísku jarðfræðistofnunum.

AP-fréttastofan vitnar í Nubia Córdoba, ríkisstjóra í Choco, sem segir fólk hafa slasast og að alvarlegar skemmdir hafi orðið á byggingum í færslu á samfélagsmiðlum.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×