„Ég er bara ógeðslega sáttur með þetta“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2026 20:32 Einar Margeir Ágústsson stóð sig vel á Evrópumeistaramótsinu í 50 metra laug í París. Sundsamband Íslands Einar Margeir Ágústsson náði bestum árangri íslenska sundfólksins á fyrsta degi Evrópumeistaramótsins í 50 metra laug í París þegar hann bætti sinn besta tíma í 100 metra bringusundi. Átta Íslendingar kepptu á fyrsta degi mótsins.
Einar synti á 1:00.87 mínútu, tæpri hálfri sekúndu hraðar en hans besti tími frá því í fyrra, sem var 1:01.23 mín. Hann hafnaði í 33. sæti af 71 keppanda í greininni. Einar var að vonum ánægður með sundið eftir að hafa komið til baka úr meiðslum. „Ég vildi bara vera nálægt mínu besta og koma til baka frá meiðslum, en ég er bara ógeðslega sáttur með þetta,“ sagði Einar eftir sundið. Hann segir fyrri 50 metrana hafa verið sérstaklega góða. „Mér leið ógeðslega vel fyrstu fimmtíu metrana, léttustu fyrstu fimmtíu sem ég hef tekið. Síðan var ég einhvern veginn bara dauður seinni fimmtíu, en ég náði aðeins að halda í og ná þessari bætingu,“ sagði Einar við SSÍ. Snæfríður Sól Jórunnardóttir náði næstbesta árangri Íslendinganna þegar hún synti 100 metra skriðsund á 55,72 sekúndum og varð í 35. sæti af 54 keppendum. Hólmar Grétarsson synti 400 metra fjórsund í morgun á 4:29.65 og hafnaði í 23. sæti af 26 keppendum. Hólmar var einnig ánægður með aðstæður í París. „Þetta er ein besta laug sem ég hef synt í,“ sagði Hólmar eftir sitt sund. Í 100 metra skriðsundi syntu einnig Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Vala Dís Cicero. Jóhanna synti á 56,79 sekúndum og Vala á 56,95 sekúndum. Birnir Freyr Hálfdánarson og Símon Elías Statkevicius kepptu í 50 metra flugsundi og syntu á 24,60 sekúndum og 24,70 sekúndum. Snorri Dagur Einarsson synti 100 metra bringusund á 1:02.20 mín. Keppni heldur áfram á morgun en þá keppa Jóhanna í 50 metra flugsundi, Birgitta Ingólfsdóttir í 100 metra bringusundi og Guðmundur Leo Rafnsson í 200 metra baksundi. View this post on Instagram A post shared by Sundsamband Íslands (@sundsambandislands)
Sund Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Handbolti Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit Fram á toppinn og flautumark á Selfossi FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Haukur leiddi endurkomu Löwen Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Hrútarnir frá Hollywood eiga að fara alla leið Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Öll pressan er á Ólafi Inga „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu Sjá meira