Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Birgir Olgeirsson skrifar 12. ágúst 2026 14:39 Össur telur Já-hreyfinguna hafa farið of hægt af stað en Nei-hreyfinguna of snemma. Kristrún geti ráðið úrslitum á lokasprettinum en Ólafur Ragnar sé orðinn helsta fallstykki Nei-sins. Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir Já-hreyfinguna hafa farið hægt af stað og skorta skýra leiðtoga. Traustur sigur náist ekki nema Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra beiti sér af fullum þunga. Á sama tíma hafi Ólafur Ragnar Grímsson orðið nánast óskoraður leiðtogi Nei-hreyfingarinnar og bundið pólitíska arfleifð sína við úrslitin.
Össur var utanríkisráðherra frá 2009 til 2013, þegar Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu og síðustu aðildarviðræður þjóðarinnar fóru fram. Hann bar pólitíska ábyrgð á ferlinu og fór fyrir íslensku sendinefndinni á ráðherrafundum Íslands og Evrópusambandsins. Viðræðurnar voru settar á ís eftir stjórnarskiptin árið 2013. Í færslu á Facebook segir Össur umræðuna í sumar hafa verið óvenju dauflega. Það hafi helst komið honum á óvart hversu hægt Já-hreyfingin hafi farið af stað. Hún hafi birst honum sem „ómótuð demókratísk fjöldahreyfing“ án sérstakra leiðtoga. Össur segist ekki viss um að það sé styrkleiki og telur úrslitin að miklu leyti ráðast af Kristrúnu. „Ég hef frá upphafi talið að JÁ-ið vinni ekki traustan sigur nema Kristrún – stjarna Silfursins og trúverðugasti stjórnmálaleiðtogi samtíðarinnar – beiti sér af fullum þunga á lokaspretti baráttunnar,“ skrifar Össur. Hann telur Kristrúnu nú ætla að rísa undir því hlutverki og vísar til boðaðra funda hennar víða um land. Þá segir hann slagorðið „Já til að sjá“ eitt það besta sem fram hafi komið í íslenskum stjórnmálum á síðari árum og að það virki vel. Ólafur orðinn leiðtogi Nei-hreyfingarinnar Össur telur Nei-hreyfinguna aftur á móti hafa farið of snemma af stað og hugsanlega náð hápunkti baráttunnar á röngum tíma. Fundur Ólafs Ragnars og Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, hafi átt að marka upphaf lokasóknarinnar en runnið út í sandinn. Ólíkt Já-hreyfingunni hafi Nei-hreyfingin þó eignast skýran leiðtoga. „Ólafur Ragnar – viljandi eða óviljandi – hefur birst sem nánast óskoraður leiðtogi baráttunnar, með Hannes Hólmstein sem eins konar viðhengi í skriflegri rökræðu,“ skrifar Össur. Hann segir Ólaf Ragnar leiða mikilvægustu fundina, mæta í lykilviðtöl og gefa pólitískar yfirlýsingar fyrir hönd andstæðinga viðræðnanna. Vegna stöðu sinnar sem fyrrverandi forseti geti hann komið á framfæri málflutningi sem síður yrði tekið mark á úr munni annarra. Össur segir Ólaf Ragnar þannig orðinn „helsta fallstykki“ Nei-hreyfingarinnar. Sigri Nei-hliðin verði honum þakkaður sigurinn en tapi hún verði hann „hinn stóri lúser“. „Hann hefur einfaldlega sett sig í þá stöðu,“ segir Össur. Össur, sem lýsir Ólafi Ragnari sem gömlum samferðamanni sínum, segist eiga erfitt með að horfa upp á hann leiða hreyfingu sem hann segir að stórum hluta skipaða hörðum kjarna Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Ólafi sé þó, eins og öðrum, frjálst að velja sér bæði vini og skoðanir. Segir málflutninginn hreinan uppspuna Harðasta gagnrýni Össurar beinist að ummælum Ólafs Ragnars um að engin trygging sé fyrir því að þjóðin fái að greiða atkvæði um hugsanlegan aðildarsamning við Evrópusambandið að loknum viðræðum. Össur segir Ólaf Ragnar þar hafa gert bæði Kristrúnu og Alþingi tortryggileg. Ummælin hafi verið á mörkum þess að saka forsætisráðherra um lygar og ríkisstjórnina um að sitja á svikráðum við þjóðina. „Fyrir þessu var enginn fótur, ekkert tilefni enda hreinn uppspuni gamals áróðursmeistara,“ skrifar Össur og segir málflutninginn sorglegan og engum boðlegan. Hann lýkur færslunni á orðum um vináttu sína við Ólaf Ragnar og segist telja sér skylt að gagnrýna hann. „Vinur er sá er til vamms segir.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ólafur Ragnar Grímsson Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Fleiri fréttir Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Sjá meira