Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Samúel Karl Ólason skrifar 12. ágúst 2026 21:01 Lögreglan í Kólumbíu birti þessa mynd af Högna þegar hann var handtekinn. Policía Nacional de Colombía Högni Kjartan Þorkelsson er laus úr haldi lögreglunnar í Medellín í Kólumbíu. Hann hafði verið sakaður um að brjóta kynferðislega á sextán ára stúlku en var sleppt í síðasta mánuði, eftir að stúlkan breytti framburði sínum. Í samtali við Heimildina segist lögmaður Högna vonast til þess að málinu verði vísað frá.
Högni, sem er á fertugsaldri, var handtekinn þann 23. desember fyrir brot sem sagt var hafa átt sér stað þann 6. desember. Sjá einnig: Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Þá var hann sakaður um að hafa boðið stúlkunni peninga fyrir kynmök en brotið á henni og beitt hana kynferðisofbeldi. Stúlkan mun hafa leitað til lögreglu og sögðu fjölmiðlar ytra að hún hefði mögulega verið beitt annars konar líkamlegu ofbeldi. Högni neitaði sök en var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Þegar hann var handtekinn var hann með sautján ára stúlku og móður hennar. Sjá einnig: Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Í svari við fyrirspurn Heimildarinnar segir Sebastian Mazo, lögfræðingur Högna, að ný sönnunargögn hafi verið lögð fram sem véfengja og hrekja ákærurnar gegn honum. Í kjölfarið hafi honum verið sleppt og vonast hann til að málið verði fellt niður á næstunni. Það gæti gerst eftir nokkra daga. Í frétt Heimildarinnar segir að nýju gögnin snúi að því að stúlkan hafi breytt sögu sinni og sagt að þau hafi aðeins deilt um greiðslu fyrir kynlífsþjónustu. Vændi er löglegt í Kólumbíu og kynferðislegur lágmarksaldur fjórtán ár.
Íslendingar erlendis Kynferðisofbeldi Kólumbía Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Fleiri fréttir Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Sjá meira