Gott að vera temmilega tortrygginn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. ágúst 2026 13:59 Hörn Valdimarsdóttir er með sérstök leyniorð með sínum nánustu. Bylgjan Djúpfölsun með gervigreind er ítrekað notuð í netsvik samkvæmt rekstrarstjóra Defend Iceland. Allir ættu að tileinka sér „temmilega tortryggni“ jafnvel í símtölum frá nákomnum aðilum. „
Djúpfölsun er í rauninni þegar ég nota mynd af einhverjum öðrum eða hermi eftir rödd annars og ég þykist vera sá einstaklingur til þess að fá aðgang að einhverjum persónugreinanlegum upplýsingum eða kannski fá þig til þess að framkvæma einhverja millifærslu. Það er tilgangur árásanna,“ segir Hörn Valdimarsdóttir, rekstrarstjóri Defend Iceland, í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Nú þegar þekki flestir falska tölvupósta og þá séu netsvikarar sömuleiðis að breyta aðferðum sínum. Á bak við símtölin gæti bæði verið eins konar vélmenni eða manneskja sem hefur notað tæknina til að breyta sinni eigin rödd. Símtölin geti líka komið úr símanúmeri sem viðtakandinn kannast við. „Þessar einföldu árásir sem eru núna byrjaðar að gerast hér á Íslandi eru eins og það var verið að hringja símtöl í nafni Sigríðar Bjarkar í febrúar,“ segir Hörn en þá starfaði Sigríður Björk sem ríkislögreglustjóri. „Eins og í þessu tilviki með Sigríði Björk var verið að reyna fá fólk til að borga einhverja sekt sem var ekki til í raunveruleikanum.“ Íslenskan ein virki ekki lengur Líkt og hægt er að herma eftir röddum annarra er líka hægt að líkjast öðrum með gervigreindinni. „Gervigreindin er búin að hjálpa okkur rosalega mikið í að búa til svona djúpfölsun þar sem ég get bara fundið mynd af ykkur á Internetinu og splæst því ofan á sjálfa mig og svo get ég bara leikið ykkur,“ segir Hörn. „Við þurfum alls ekkert að fara í neina hörmungarhyggju og efast um hvert símtal sem við fáum, alls ekki. En það er gott að hafa svona temmilega tortryggni, vil ég kalla það oft.“ Hún sé sjálf með eins konar lykilorð með sínum nánustu, spurningu og svar sem eiga jafnvel ekkert saman. Hún tekur sem dæmi að spyrja hvað þau hafi borðað í kvöldmatinn í fyrradag og sé þá búin að koma sér saman við sinn nánasta um að svarið sé orð eins og blár. „Ég held það spili líka rosalegan part í þessu núna hjá okkur að við erum einhvern veginn litla Ísland og erum með íslenskuna okkar og það skilur enginn íslensku. Við elskum að fara til útlanda og við getum talað íslensku og enginn skilur okkur. En núna er komin upp sú staða að gervigreindin er það góð að við getum ekki falið okkur á bak við íslenskuna lengur,“ segir hún.
Gervigreind Netöryggi Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Fleiri fréttir Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Setja lög á verkfall flugvirkja Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Sjá meira