Bændur segja nei Árni Sæberg skrifar 14. ágúst 2026 16:08 Trausti Hjálmarsson, formaður bændasamtaka Íslands, á síðasta bændaþingi. Vísir/Anton Brink 95 prósent fulltrúa á Bændaþingi hafa samþykkt ályktun þess efnis að Búnaðarþing leggist gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og þar með að hefja á ný viðræður um aðild.
Í fréttatilkynningu þess efnis frá Bændasamtökum Íslands segir að alls hafi 55 þingfulltrúar greitt atkvæði um ályktunina í rafrænni kosningu. Af þeim hafi 52 samþykkt ályktunina, eða 94,55 prósent, einn hafnað henni, eða 1,82 prósent, og tveir skilað auðu, eða 3,64 prósent. Ályktunin sé svohljóðandi: „Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands, haldið í Reykjavík þann 14. ágúst 2026, telur að hagsmunir íslensks landbúnaðar séu að standa utan sameiginlegu landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Af þeim sökum leggst Búnaðarþing gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og þar með að hefja á ný viðræður um aðild.“ Ekkert aðildarríki fengið undanþáguna sem bændur þyrftu Í rökstuðningi með ályktuninni segir að engum vafa sé undirorpið að íslenskur landbúnaður þyrfti að fá víðtækar varanlegar undanþágur og sérlausnir frá regluverki Evrópusambandsins ef kæmi til inngöngu Íslands í sambandið. Um það sé ekki deilt. Meginregla Evrópusambandsins sé að aðildarríki taki upp og framfylgi sameiginlegu regluverki sambandsins í heild sinni. Undanþágur og sérlausnir innan sambandsins séu undantekning frá grundvallarforsendum aðildar og sæta almennt því skilyrði að þær séu samrýmanlegar markmiðum innri markaðarins og meginreglum þeirrar stefnu sem um ræðir og raski ekki virkni hennar. Skýrsla milliþinganefndar Bændasamtakanna sýni að ekkert aðildarríki Evrópusambandsins hafi fengið undanþágu til að standa utan sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar og ekkert ríki hafi fengið svo víðtækar varanlegar undanþágur frá meginregluverki stefnunnar sem jafngilda því að standa utan hennar. „Þannig eru hverfandi líkur á því að Ísland gæti samið um svo víðtækar og varanlegar sérlausnir að þær fælu í sér að íslenskur landbúnaður stæði að verulegu leyti utan þeirrar umgjarðar sem sameiginleg landbúnaðarstefna sambandsins setur.“ Ekki hægt að skilja á milli umræðu um aðild og aðildarviðræðna Að mati Búnaðarþings sé ekki hægt að skilja á milli umræðu um aðild og aðildarviðræðna. Með því að hefja aðildarviðræður að nýju sé verið að samþykkja að hefja ferli í átt að aðild að Evrópusambandinu. „Að mati Búnaðarþings er ekki forsvaranlegt að fara í þá vegferð þegar hverfandi líkur eru á niðurstöðu sem réttlætir þá miklu óvissu sem viðræðuferlið myndi skapa fyrir íslenskan landbúnað. Þegar engar trúverðugar lausnir eru í sjónmáli er hvorki ábyrgt né skynsamlegt að leggja atvinnugreinina undir slíka áhættu.“
Landbúnaður Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira