Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. ágúst 2026 19:15 Risastór fáni var dreginn að húni við komuna í sundin. Vísir/Rafn Kólumbíska skólaskipið ARC Gloria er í heimsókn í Reykjavík og eins og margir borgarbúar hafa eflaust tekið eftir á heimleiðinni er um að ræða þriggja mastra barkskip sem er opinbert flaggskip kólumbíska sjóhersins.
Skipið kom í höfn í Reykjavík í dag og mun liggja næstu daga við Ægisgarð í gömlu höfninni. Í tilefni heimsóknarinnar verður skipið opið almenningi í fjóra daga, frá 16. til 19. ágúst, og aðgangur er ókeypis. Heimsóknin er jafnframt hluti af hátíðarhöldum í tilefni þjóðhátíðardags Kólumbíu og 45 ára diplómatískra samskipta Kólumbíu og Íslands. Fljótandi landkynning ARC Gloria er skólaskip kólumbíska sjóhersins og gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki sem eins konar sendiherra Kólumbíu á heimshöfunum. Skipið hefur siglt til hafna víða um heim og kynnt Kólumbíu, menningu landsins og starf og hefðir kólumbíska sjóhersins. Skipið er óneitanlega glæsilegt.Kólumbíska sendinefndin Í tilefni af heimsókninni býður sendiherra Kólumbíu gagnvart Íslandi og Svíþjóð, Guillermo Francisco Reyes González, almenningi á Íslandi að stíga um borð í ARC Gloria og kynnast skipinu og Kólumbíu. Dans, tónlist, matur og drykkur Gestum gefst kostur á að heimsækja skipið frá klukkan tíu um morgun og til klukkan þrjú síðdegis á sunnudaginn, frá tíu til átta um kvöld á mánudaginn 17. og þriðjudaginn 18. og frá klukkan tíu til fjögur síðdegis á miðvikudaginn. Skipið leggur svo úr höfn klukkan sjö að kvöldi miðvikudaginn 19. ágúst. Áhafnarmeðlimir leika listir sínar á einu mastra Gloriu.Kólumbíska sendinefndin Í tengslum við heimsóknina fara einnig fram hátíðarhöld sunnudaginn 16. ágúst í tilefni þjóðhátíðardags Kólumbíu en sömuleiðis að 45 ár eru nú liðin frá því að komið var á diplómatískum samskiptum milli Kólumbíu og Íslands. Kl. 17:30 verður haldin heilög messa til minningar um fórnarlömb jarðskjálftans og frá kl. 18:30 til 21:00 fara fram hátíðarhöld í tilefni þjóðhátíðardags Kólumbíu, þar sem boðið verður upp á hefðbundna kólumbíska dansa, tónlist, smárétti og drykki.
Kólumbía Reykjavík Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira