Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 15. ágúst 2026 12:01 Aðstæður eru mun betri í þetta skipti. Vísir/Samsett Sjósundkappinn Sigurgeir Svanbergsson gerir aðra atlögu að því að synda Lagarfljót endilangt í kvöld eftir að hafa þurft frá að hörfa vegna ofkælingar í júní. Aðstæðurnar eru mun vænlegri í þetta sinn.
Fimmtánda júní gerði Sigurgeir fyrstu tilraun sína og synti um tíu kílómetra áður en hann þurfti að stöðva sundið vegna ofkælingar en vatnið var í kringum tvær og hálfar gráðurnar og á næturna fraus. Nú tveimur mánuðum síðar ætlar hann að láta reyna aftur á það. Aðstæður eru töluvert betri til langra sundferða en um miðjan júní. Undanfarið hefur verið fylgst reglulega með hitastigi fljótsins að sögn Árna Bergssonar vinar og helsta stuðningsmanns Sigurgeirs og mælist það nú um og yfir átta gráður. „Vatnið er miklu hlýrra og ég er miklu hvíldari og miklu betri. Þannig að aðstæður eru bara allt öðruvísi núna í kvöld heldur en þær voru í júní. Við erum bara mjög vongóð með þetta núna,“ segir Sigurgeir. Hann kveðst einnig betur undirbúinn andlega og líkamlega. „Þetta gæti alveg farið upp í 20 tíma en þetta gæti líka verið einhvers staðar í 16 tímum. Ég bara vonast til þess að við séum búin að undirbúa allt nógu vel þannig að það komi ekkert of alvarlegt upp sem kemur okkur á óvart og hefur áhrif á okkur. Við gerum okkur grein fyrir því að það verður alltaf eitthvað, en vonandi ekkert í líkingu við það sem við vorum að lenda í síðast.“ Hvað borðar maður á sólarhringssundi? „Þetta er bara stappa af bönunum. Ég held ég hafi sett tuttugu banana og og svo tvær dollur af hnetusmjöri og svo Nutella. Það er bara búið að stappa þetta í drullumall. Ég fæ þetta á hálftímafresti sirka. Svo er ég með kolvetnadrykk, mikið af Unbroken, kóki og og hlaupbangsa.“
Sund Geðheilbrigði Fljótsdalshreppur Múlaþing Sjósund Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira