Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Smári Jökull Jónsson skrifar 15. ágúst 2026 14:29 Glaðir Grindavíkurstrákar í Fossvoginum í dag. Aðsend Grindavík stillti upp liði á Hamingjumóti Víkinga í knattspyrnu sem fram fór í morgun. Er þetta í fyrsta sinn sem Grindavík mætir til leiks í yngri flokkum síðan sumarið 2024 og var gleðin allsráðandi þegar fagnað var í leikslok.
Eftir rýminguna í Grindavík þann 10. nóvember 2023 fór íþróttastarf barna í Grindavík í uppnám. Þá um veturinn var haldið úti æfingum í knattspyrnu og körfubolta í öðrum sveitarfélögum og tóku lið á vegum Grindavík þátt í mótum út sumarið 2024. Síðan þá hefur engir yngri flokkar verið starfræktir í Grindavík. Í dag tók hins vegar lið frá Grindavík þátt í Hamingjumóti Víkinga í Fossvoginum þar sem 7. flokkur keppir. Glaðir Grindvíkingar.Aðsend Var samsetning liðsins framtak foreldra en að sögn eins foreldris úr hópnum ákvað hópurinn um sjómannadagshelgina að skrá lið til leiks á allavega eitt mót í sumar. Varð úr að liðið tók þátt á mótinu í dag og var gleðin mikin hjá drengjunum sem eru á aldrinum 7-8 ára og unnust góðir sigrar. Knattspyrnuskóli í sumar og unglingastarf körfunnar að fara af stað Ákveðin þáttaskil eru að verða í málefnum Grindvíkinga þessa dagana því leikskólastarf hófst þar í vikunni og þar verður skólastarf bæði í leik- og grunnskóla í vetur í fyrsta sinn síðan skólaárið 2023-24. Þá hefur knattspyrnudeild Grindavíkur staðið fyrir knattspyrnuskóla í sumar undir stjórn leikmanna og þjálfara meistaraflokks karla sem leikur í Lengjudeildinni. „Það hefur gengið fínt, þetta hafa verið 8-12 krakkar að jafnaði,“ segir Sigurður Óli Þorleifsson formaður knattspyrnudeildar í samtali við fréttastofu. „Hver krakki er gulls ígildi og draumurinn er í vetur að geta sest niður með bæjaryfirvöldum og geta boðið upp á einhvers konar æfingar til að halda þessu áfram. Gefa krökkum kost á að koma á æfingar þó þeir séu að æfa annars staðar,“ bætir Sigurður Óli við. Fyrr í vikunni auglýsti stjórn körfuknattleiksdeild Grindavíkur eftir aðilum í unglingaráð deildarinnar undir yfirskriftinni Tökum saman næstu skref fyrir körfuboltann í Grindavík. Það er því ljóst að Grindvíkingar vilja gera allt til að halda einhvers konar starfi gangandi í sveitarfélaginu. Taktíkin lögð upp á milli leikja.Aðsend „Það skiptir öllu máli því félagið er ekkert án barna, þá er engin framtíð. Stærsta skrefið er að byrja skólahald,“ segir Sigurður Óli að lokum.
Grindavík Íþróttir barna Fótbolti Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira