Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Lovísa Arnardóttir skrifar 18. ágúst 2026 08:49 Slökkviliðsmaður berst við skógarelda í Vilarinho da Castanheira skóginum í Portúgal. Myndin er tekin í gær. Vísir/EPA Um 82 prósent telja að hitamet og skógareldar í Evrópu séu að miklu leyti vegna loftslagsbreytinga. Töluverður munur er eftir kyni og afstöðu til stjórnmálaflokka. Þetta er niðurstaða könnunar Maskínu sem framkvæmd var í ágúst.
Gróðureldar hafa geisað víða um Evrópu í sumar og hvert hitametið fallið af öðru. Í tilkynningu um niðurstöður könnunarinnar frá Náttúruverndarsamtökunum Íslands segir að skógareldar muni hafa áhrif á loftslagsstefnu Evrópusambandsins og þó svo að Ísland sé ekki aðili að sambandinu sé Ísland þátttakandi í loftslagsstefnunni í gegnum EES-samninginn. Ef litið er til ólíkra bakgrunnsbreyta þeirra sem svara könnunni má sjá að ögn fleiri sem yngri eru en 40 ára telja að hitamet og skógareldar séu að mjög eða frekar miklu leyti vegna loftslagsbreytinga og hlutfallið einnig hærra eftir því sem menntunarstig eykst. Þá er hlutfallið hærra hjá konum, 89,3 prósent, miðað við hjá körlum, 74,5 prósent. Sjá könnun hér. Hlutfall þeirra sem telja skógarelda og hitamet að mjög eða frekar miklu leyti vegna loftslagsbreytinga. Maskína Flestir, 47,4 prósent, segja hitamet og skógarelda tengjast loftslagsbreytingum að mjög miklu leyti en 34,2 prósent segja frekar miklu. Það eru svo 13,2 prósent sem segja frekar litlu og 5,3 prósent sem segja mjög litlu eða engu leyti. Ólík afstaða eftir stjórnmálaflokkum Afstaða fólks er nokkuð mismunandi eftir því hvaða flokk það ætlar að kjósa. Sem dæmi telja um 80 prósent kjósenda Vinstri grænna og Pírata að skógareldar og hitamet tengist loftslagsbreytingum að mjög miklu leyti en aðeins 9,8 prósent kjósenda Miðflokksins. Þar segir meirihluti annaðhvort að skógareldarnir og hitametið séu að frekar miklu leyti (36,5 prósent) eða að frekar litlu leyti (32,4 prósent) vegna loftslagsbreytinga. Hæsta hlutfall þeirra sem telja hitamet og skógarelda vegna loftslagsbreytinga að mjög litlu eða engu leyti vegna loftslagsbreytinga eru 21,4 prósent kjósenda Miðflokksins. Hér má sjá mun eftir helstu bakgrunnsbreytum. Maskína 9,7 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokksins eru sammála því og 8,1 prósent kjósenda Flokks fólksins. Um 28 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokksins segja þó að þau telji hitamet og skógarelda að mjög miklu leyti vegna loftslagsbreytinga og 41 prósent þeirra frekar miklu leyti. Spurt var í könnuninni: Að hve miklu eða litlu leyti telur þú að hitamet og útbreiddir skógareldar í Evrópu tengist loftslagsbreytingum? Könnunin fór fram frá 7. til 11. ágúst 2026 og voru svarendur 1.205 talsins.
Gróðureldar Loftslagsmál Evrópusambandið EES-samningurinn Tengdar fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Tveir létust og mörg hundruð manns voru flutt á brott af grísku eyjunni Salamis sem er nærri höfuðborginni Aþenu en tveir gróðureldar kviknuðu „nánast samtímis“ eða um klukkan 14:40 á staðartíma og svo tuttugu mínútum seinna. Fyrri eldurinn kviknaði á suðurströnd eyjunnar og að sögn slökkviliðsyfirvalda í Grikklandi breiddist hann gríðarlega hratt út vegna hvassviðris. 16. ágúst 2026 18:14 Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Slökkviliðsmenn á Englandi og í Frakklandi berjast nú við fjölda gróðurelda í enn einni hitabylgjunni sem gengur yfir Evrópu. Hiti nálgaðist fjörutíu gráður í London í gær. 14. ágúst 2026 09:54 Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Meðalhiti í Vestur-Evrópu í júní og júlí var sá hæsti sem mælst hefur og sló fjögur ára gamalt met. Þúsundir dauðsfalla hafa verið rakin til hitabylgna þar frá því í vor. 10. ágúst 2026 07:36 Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Sjá meira
Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Tveir létust og mörg hundruð manns voru flutt á brott af grísku eyjunni Salamis sem er nærri höfuðborginni Aþenu en tveir gróðureldar kviknuðu „nánast samtímis“ eða um klukkan 14:40 á staðartíma og svo tuttugu mínútum seinna. Fyrri eldurinn kviknaði á suðurströnd eyjunnar og að sögn slökkviliðsyfirvalda í Grikklandi breiddist hann gríðarlega hratt út vegna hvassviðris. 16. ágúst 2026 18:14
Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Slökkviliðsmenn á Englandi og í Frakklandi berjast nú við fjölda gróðurelda í enn einni hitabylgjunni sem gengur yfir Evrópu. Hiti nálgaðist fjörutíu gráður í London í gær. 14. ágúst 2026 09:54
Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Meðalhiti í Vestur-Evrópu í júní og júlí var sá hæsti sem mælst hefur og sló fjögur ára gamalt met. Þúsundir dauðsfalla hafa verið rakin til hitabylgna þar frá því í vor. 10. ágúst 2026 07:36