Semur aftur við Corinthians nokkrum dögum eftir að hafa úthúðað félaginu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. ágúst 2026 17:01 Memphis Depay ákvað að gefa Corinthians afslátt af launakröfum sínum. epa/ANDRE BORGES Nokkrum dögum eftir að hafa farið hörðum orðum um þá sem stjórna hjá Corinthians hefur Memphis Depay, markahæsti leikmaður í sögu hollenska landsliðsins, framlengt samning sinn við brasilíska félagið. Hann tekur á sig verulega launalækkun.
Í síðustu viku sakaði Memphis Corinthians um óásættanlega hegðun eftir að félagið dró samningstilboð sitt til baka. „Ég er neyddur til að bregðast sterklega við til að gæta minna hagsmuna. Á næstu dögum mun ég tala við almenning en ég mun ekki láta þessa óásættanlegu hegðun viðgangast,“ skrifaði Memphis á samfélagsmiðla. Skjótt skipast veður í lofti og nú hefur Memphis skrifað undir tveggja ára samning við Corinthians. Forseti félagsins, Omar Stabile, segir að Memphis hafi slegið af kröfum sínum. „Allt er í lagi en þetta var mikil vinna. Auðvitað er ekki hægt að ganga frá samningi við stórstjörnu á augabragði. Þetta var langt ferli en allt gekk upp,“ sagði Stabile. „Við áttum fund og honum tókst að lækka tölur sem teymi hans gat ekki náð. Við gerðum það sem var best fyrir Corinthians, sérstaklega fjárhagslega.“ Talið er að Memphis hafi ákveðið að gefa eftir 21 milljón ríal sem jafngildir tæplega hálfum milljarði íslenskra króna. Félagið þarf því að greiða honum tæplega 1,3 milljarða íslenskra króna, í fjórum pörtum. Ef greiðslurnar tefjast tapar Corinthians afslættinum sem Memphis gaf því. Memphis, sem er 32 ára, gekk í raðir Corinthians frá Atlético Madrid fyrir tveimur árum. Hann varð bikarmeistari með liðinu í fyrra auk þess sem það vann deildina í Sao Paulo. Alls hefur Memphis leikið 79 leiki fyrir Corinthians og skorað tuttugu mörk.
Fótbolti Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Handbolti Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Sjá meira