Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. ágúst 2026 11:14 Það er mun erfiðara að fela sig í landslagi Grænlands, sem er Íslendingum kunnulegra, en í skógum Danmerkur. Forsvaret/Emma Sanko Herkvaddir ungir Danir hafa í fyrsta sinn verið sendir til Grænlands til að sinna herskyldu sinni. Þeir taka þátt í æfingunni Arctic Endurance og starfa með grænlenskum kollegum sínum í grunnþjálfun þar.
Fyrsti hópur herskyldaðra Dana lenti í Nuuk í byrjun mánaðar og munu verja þar næstu ellefu mánuðum en herskylda í Danmörku nær yfir það tímabil fyrir alla unga danska karla og konur einnig frá og með áramótum. Um er að ræða kadetta í slésvísku fótgönguliðasveitinni sem telja um sextán hundruð drengi. Hermennirnir munu meðal annars æfa sig í að skríða í kjarri.Forsvaret/Emma Sanko Á vef danska hersins er rætt við nítján ára kvaðmann sem er þakklátur fyrir að fá að taka þátt í þessu sögulega uppihaldi. „Það er frábært að fá tækifæri til að prófa að vera í aðgerðum hér á Grænlandi. Við tókum stutt sumarfrí áður en við fórum af stað. Þótt það hafi verið notalegt hef ég aðallega bara hlakkað til að koma aftur svo við gætum farið af stað,“ segir kvaðmaðurinn sem kallaður er Krab. Allt annað landslag Meðan sveinarnir eru á Grænlandi skiptast þeir í tvo hópa, annar í Kangerlussuaq, gamla alþjóðaflugvellinum, og hinn í Nuuk, þar sem báðir hóparnir sinna mikilvægum verkefnum sem hluta af herþjónustu sinni. Á einhverjum tímapunkti verða sveinar frá Kangerlussuaq sendir til Nuuk til að taka við verkefnum þar, á meðan aðrir frá Nuuk fara til Kangerlussuaq. Náttúran umhverfis Kangerlussuaq, sem liggur norðan við heimskautabaug, einkennist af bröttum klettum, víðáttumiklum sléttum án nokkurs trés og grjóti í öllum stærðum og gerðum, gjörólíkt því skóglendi sem kadettarnir eru vanir. Kjarrlitaðir felulitir.Forsvaret/Emma Sanko „Staða heimsmálana í dag kallar á að við aðlögum okkur betur að heimskautaaðstæðum, sem við gerum einmitt núna meðan við erum hér. Í danskri náttúru viljum við sem fótgönguliðar helst vera í skógi eða öðru lokuðu landslagi þar sem hægt er að fela sig. En hér uppi er ekkert slíkt landslag, þannig að hermennirnir þurfa að læra hvernig eigi að fela sig og felulita sig í heimskautalandslagi,“ segir Laura, sem er höfuðsmaður og foringi kvaðmannanna. Hinn 20 ára Clemmens frá Árósum tekur í sama streng. „Allt er öðruvísi hér þegar kemur að náttúrunni, og það er allt annað að fara um landslagið. Það eru brattar hlíðar hér sem taka verulega á lærin.“ Herviðvera allan ársins hring Að sögn Lauru sveitarforingja er mikilvægt fyrir hermenn eins og Krab og Clemmens að læra að beita færni sinni í ólíkum gerðum landslags, enda þurfi hermaður ávallt að geta ratað um umhverfi sitt. „Maður þarf stöðugt að vita hvar maður er sjálfur og hvar aðrar sveitir eru, og maður þarf að geta fundið og bent á stöður óvinarins. Ef maður þekkir umhverfið betur en óvinurinn og getur nýtt sér landslagið sér í hag, getur það ráðið úrslitum í bardaga,“ segir Laura. Flugnanetin eru ómissanlegur hluti búnaður hermannsins á Grænlandi.Forsvaret/Emma Sanko Ellefu mánaða kvaðmennirnir úr slésvísku fótgönguliðinu, sem nú eru á æfingu á Grænlandi, eru fyrsti hópurinn í hinni lengdu herskyldu sem tók gildi í febrúar 2026. Þegar æfingunni á Grænlandi lýkur halda þeir áfram þjálfun sinni í Danmörku. Æfingin Arctic Endurance fer fram í nánu samstarfi við grænlensku landsstjórnina. Ákveðið hefur verið að viðhalda og efla viðveru danska hersins í heimskautasvæðunum og Norður-Atlantshafi allt árið 2026, í nánu samstarfi við nokkur bandalagsríki NATO. Á næstunni má því búast við aukinni hernaðarviðveru flugvéla, skipa og hermanna í og við Grænland.
Grænland Danmörk NATO Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira