Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 18. ágúst 2026 23:30 Snærós Sindradóttir frá Evrópuhreyfingunni, Gréta María Grétarsdóttir frá Já til að Sjá, Erna Bjarnadóttir frá Heimsýni og Júlíus Viggó Ólafsson frá Áfram Ísland. Þau tókust át í Pallborðinu í dag. Vísir/Sigurjón Hart var tekist á um kostnað Íslands við mögulega ESB-aðild í Pallborðinu á Vísi í dag. Áfram Ísland segir árlegan kostnað geta numið fimmtíu milljörðum króna en fulltrúar já-hreyfinganna hafna þeirri tölu alfarið og segja villandi að setja hana fram án þess að mögulegur ávinningur sé tekinn með.
Víða má sjá auglýsingar frá baráttuhreyfingum sem hafa tekið afstöðu til Þjóðaratkvæðagreiðslunnar framundan. Áfram Ísland sem berst fyrir neitun auglýsir á strætóskýlum og flettiskiltum að Ísland muni þurfa að greiða fimmtíu milljarða árlega fyrir að vera í sambandinu. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafnaði því í hádegisfréttum Bylgjunnar, talan væri nærri 7-8 milljörðum. Áfram Ísland stendur við 50 milljarðana í fréttatilkynningu frá samtökunum. Ólíkar nálganir Júlíus Viggó Ólafsson stofnfélagi í Áfram Ísland var spurður út í útreikning hreyfingarinnar í Pallborðinu í dag þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan var til umræðu. „Þetta eru útgjöldin sem það myndi að öllum líkindum kosta að vera í Evrópusambandinu miðað við þjóðartekjur í ár. Aðildarríki í Evrópusambandinu greiða á bilinu eitt prósent af þjóðartekjum til sambandsins. Miðað við þjóðartekjur í ár eru þetta um fimmtíu milljarðar króna,“ segir Júlíus. Snærós Sindradóttir framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar sagði þetta afar villandi framsetningu. „Þetta er nærri 20 milljörðum. Í dag erum við nettógreiðendur inn í EES, það er engum sem myndi detta í hug að halda öðru fram en því að ávinningurinn sé töluverður miðað við það sem við borgum inn í það samstarf. Og þannig yrði það líka ef við myndum ganga inn í Evrópusambandið,“ segir Snærós. Undir það tekur Gréta María Grétarsdóttir frá Já til að sjá. „Við vitum að já kostar eitthvað en ekki 50 milljarðar kannski frekar 20 milljarðar. Það má ekki plata þjóðina með kostnaðinum án þess að taka inn ávinninginn. Og þetta er alvarlegt að setja svona fram án þess að ræða ávinninginn,“ sagði Gréta. Afar mismunandi hvað hreyfingarnar hafa til umráða Viðmælendur voru líka spurðir hvað hreyfingarnar hyggjast eyða miklu í kynningar- og markaðsmál og hvernig styrkjamál ganga. „Það gengur bara vel hjá okkur. Við erum líka að reka mjög hóflega kosningabaráttu þess vegna hlakka ég til að heyra svör frá Áfram Ísland. Kosningabarátta Evrópuhreyfingarinnar síðustu þrjá mánuði, júní, júlí og ágúst, kostar samtals um 12 milljónir króna,“ segir Snærós Sindradóttir en hreyfingin fékk tíu milljónir króna frá stjórnvöldum líkt og Heimsýn sem er á öndverðum meiði. „Við höfum verið að safna styrkjum, bæði frá fyrirtækjum og einstaklingum, og við gerum ráð fyrir því að okkar barátta kosti á bilinu 70 til 75 milljónir. Við erum ekki alveg komin þangað,“ segir Gréta María. „Þessi 10 milljóna styrkur sem við fengum frá stjórnvöldum er sennilega 60-70% af öllu því sem við höfum úr að spila, þannig að þetta er langt innan við 20 milljónir sem við erum að eyða frá áramótum,“ segir Erna Bjarnadóttir hjá Heimsýn. „Áfram Ísland er fjármagnað af þúsundum framlaga frá einstaklingum og fyrirtækjum. Þau koma saman til að heyja þessa dýru baráttu,“ segir Júlíus Viggó frá Áfram Ísland. Hann væri ekki upplýstur um hversu háum fjármunum ætti að eyða í kynningar- og markaðsmál. Andstæðingar í Pallborðinu áætluðu hins vegar að Áfram Ísland væri að eyða um 200-300 milljónum króna í baráttuna. Sú tala var ekki staðfest í Pallborðinu í dag.
Pallborðið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alþingi Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli Sjá meira