Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Stefán Árni Pálsson skrifar 19. ágúst 2026 20:33 Spjótin hafa beinst að Infantino undanfarnar vikur innan FIFA. Vísir/getty Stuðningur við Gianni Infantino, forseta FIFA, heldur áfram að minnka. Sándor Csányi, einn af varaforsetum FIFA og meðlimur í framkvæmdaráði sambandsins, hefur nú dregið stuðning sinn við Infantino til baka.
Csányi, sem er forseti ungverska knattspyrnusambandsins, segir brottrekstur Kevins Lamour, framkvæmdastjóra rekstrarmála FIFA, hafa verið dropann sem fyllti mælinn. Í bréfi til Infantino segir Csányi að forsetinn hafi glatað því trausti sem hann hafði til Infantino. Lamour yfirgaf FIFA fyrr í þessum mánuði eftir að hafa gagnrýnt áform Infantino um að opna fyrir einkafjárfestingar í viðskiptalegum réttindum heimsmeistaramótsins og annarra FIFA-keppna. Áformin voru síðar lögð til hliðar eftir mikla gagnrýni innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Csányi segir í bréfi sínu að uppsögn Lamour bendi til alvarlegra annmarka á faglegu mati, siðferðilegum viðmiðum og leiðtogahæfni Infantino. Hann gagnrýnir einnig ýmsar ákvarðanir FIFA í tengslum við heimsmeistarakeppnina og segir áhyggjur af stjórnarháttum sambandsins hafa aukist. Andstaðan eykst Csányi er ekki sá eini sem hefur snúist gegn Infantino. Aleksander Čeferin, forseti UEFA, Sheikh Salman bin Ebrahim Al Khalifa, forseti Asíusambandsins AFC, og Vittorio Montagliani, forseti CONCACAF, hafa allir gagnrýnt stjórn FIFA-forsetans. Svartfjallaland hefur einnig dregið fyrri stuðning sinn við endurkjör Infantino til baka og Ísrael hefur gert slíkt hið sama. Wales varð fyrr í þessum mánuði fyrsta knattspyrnusambandið til að tilkynna formlega að það styddi ekki lengur framboð hans. Infantino stefnir engu að síður á fjórða kjörtímabil sitt sem forseti FIFA. Kosningin fer fram í mars 2027 og myndi nýtt kjörtímabil halda honum við stjórnvölinn til ársins 2031. Hann nýtur enn stuðnings frá stórum svæðissamböndum á borð við CAF í Afríku og CONMEBOL í Suður-Ameríku.
Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira