Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Samúel Karl Ólason skrifar 20. ágúst 2026 16:14 Lögreglumenn frá Puntlandi í Sómalíu í eftirlitsferð á Adenflóa. Getty/Abuukar Mohamed Muhidin, Anadolu Útlit er fyrir að sómalskir sjóræningjar séu aftur byrjaðir að láta til sín taka á Adenflóa og Rauðahafi, eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara um árabil. Fyrr í vikunni réðust sjóræningjar um borð í tyrkneskt skip sem var meðal annars að flytja vopn og sigldu því til Sómalíu.
Síðastliðinn mánudag réðust átta vopnaðir menn um borð í tyrkneska flutningaskipið Lutuf, undan ströndum Sómalíu. Um borð í skipinu voru tíu menn sem voru að flytja vopn, ýmis hergögn og samskiptabúnað til þjálfunarbúðar Tyrkja í Mogadishu. Sami hópur rændi öðru skipi í apríl og þá réðust einnig sex vopnaðir menn um borð í olíuflutningaskip undan ströndum Jemen í dag. Skipið sem tekið var í dag er nú sagt á leið til Sómalíu. UKMTO WARNING 118-26 UPDATE 001 Click here to view the full product⤵️ https://t.co/TA6cqIqsyJ#MaritimeSecurity #MarSec pic.twitter.com/fBRghwkqpJ— UKMTO Operations Centre (@UK_MTO) August 20, 2026 AP fréttaveitan hefur eftir ónafngreindum heimildarmanni í Sómalíu að eftir að sjóræningjarnir tóku Lutuf á mánudaginn hafi skipinu verið fylgt eftir af tyrkneskum skipum og að minnsta kosti einni þyrlu. Þegar skipinu var siglt að landi var gerð loftárás á svæðinu og dóu fjórir menn í henni. Ekki liggur fyrir hverjir gerðu árásina, hverjir dóu né nákvæmlega hvert skotmarkið var. Hvar áhöfn skipsins er liggur sömuleiðis ekki heldur fyrir, né hvað varð um hergögnin um borð. Ráðamenn í Tyrklandi hafa ekki svarað fyrirspurnum AP. Skipinu sem sami hópur er talinn hafa tekið í apríl var einnig siglt til Sómalíu. Það heitir Asana og er olíuflutningaskip skráð í Tansaníu. Versnandi ástand, fleiri sjóræningjar Sómalskir sjóræningjar voru mjög umsvifamiklir um árið 2010 en þá var fljótt farið í hart gegn þeim. Bandaríkin og ríki Evrópu sendu herskip á svæðið og hefur lítið farið fyrir sjóræningjunum síðan þá. Þeim hefur hins vegar vaxið ásmegin að undanförnu, samhliða mjög slæmu og versnandi ástandi víða í Sómalíu. Eins og fram kemur í grein CNBC hafa þurrkar og lítið fæðuöryggi leikið Sómala grátt. Öryggisástand hefur versnað og dregið hefur úr mannúðaraðstoð. Þetta hefur allt leitt til fjölgunar sjóræningja og vígamanna í Sómalíu sem eiga þar að auki í auknu samstarfi við Húta í Jemen. Frá þeim hafa sjóræningjarnir fengið vopn, þjálfun og upplýsingar, samkvæmt CNBC, sem vitnar í Sameinuðu þjóðirnar. Þegar sjóræningjar rændu skipinu Eureka í maí fóru þeir fram á tíu milljónir dala í lausnargjald. Áður höfðu þeir rænt kínversku fiskiskipi en fyrir það eru sjóræningjarnir taldir hafa fengið 1,2 til 1,5 milljónir dala í lausnargjald. Þá eru sjóræningjarnir sagðir hafa lagt sérstaka áherslu á það að ræna olíuflutningaskipum, samhliða auknu olíuverði vegna stríðsins gegn Íran. Það hefur einnig verið auðveldað þar sem skipunum er gjarnan siglt nær ströndum Sómalíu en áður, vegna árása Húta, sem njóta stuðnings klerkastjórnarinnar í Íran.
Sómalía Jemen Skipaflutningar Tyrkland Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira