Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. ágúst 2026 09:40 Ivan Mendez er genginn til liðs við Dimmu. Þungarokkssveitin Dimma hefur fundið sér nýjan söngvara, hinn kólombísk-íslenska Ivan Mendez, eftir að Stefán Jakobsson hætti í sveitinni vegna ósættis við bassaleikarann Silla Geirdal. Dimma vinnur þessi dægrin að sjöundu breiðskífu sinni og gaf út fyrsta lagið af henni í dag.
Hljómsveitin greinir frá þessu í tilkynningu á samfélagsmiðlum. „DIMMA snýr nú aftur tvíefld, með nýja liðskipan og nýtt lag sem ber heitið Skarkali!Lagið er það fyrsta sem heyrist frá DIMMU í 5 ár og gefur hugmynd um hverju fólk má eiga von á frá sveitinni á sjöundu breiðskífu okkar, sem nú er í vinnslu og væntanleg á næsta ári,“ segir í tilkynningu. Stefán Jakobsson, betur þekktur sem Stebbi Jak, hætti í sveitinni eftir fimmtán ára veru vegna ósættis við bassaleikarann Silla Geirdal og eiginkonu hans sem hann sagði að hefðu tekið afstöðu gegn honum í dómsmáli þar sem hann var ákærður fyrir líkamsárás og síðar sýknaður. Silli og kona hans höfnuðu þeim ásökunum og sögðust hafa reynt að koma á sáttum í málinu þar sem báðir aðilar dómsmálsins tengdust þeim böndum. Það hefði ekki tekist og samstarfið því sprungið. Nýjasti meðlimur sveitarinnar er söngvarinn Ivan Mendez sem er ættaður frá Kólombíu og hefur gefið út tónlist undir eigin nafni síðustu ár. Einnig er trommarinn Skúli Gíslason ný viðbót en hann kemur í stað Birgis Jónssonar. Bræðurnir Silli Geirdal bassaleikari og Ingó Geirdal gítarleikari eru fyrir í sveitinni. Hægt er að hlusta á nýja lagið, „Skarkala!“, hér að neðan:
Tónlist Tímamót Tengdar fréttir Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Stefán Jakobsson tónlistarmaður hefur verið sýknaður af ákæru um líkamsárás. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness síðdegis í dag. 8. apríl 2026 15:48 Mest lesið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Keppast um að minnast Stewarts Lífið Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Bíó og sjónvarp Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Lífið Fleiri fréttir Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Stefán Jakobsson tónlistarmaður hefur verið sýknaður af ákæru um líkamsárás. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness síðdegis í dag. 8. apríl 2026 15:48
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið