Innherji

ESB-kosning á radar er­lendra fjár­festa í ís­lenskum verð­bréfum

Hörður Ægisson skrifar
Fátt bendir til þess að fjárfestar, hvorki innlendir né erlendir, hafi verið að byggja upp stöður á skuldabréfamarkaði sem endurspeglar veðmál þeirra á niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar laugardaginn 29. ágúst næstkomandi.
Fátt bendir til þess að fjárfestar, hvorki innlendir né erlendir, hafi verið að byggja upp stöður á skuldabréfamarkaði sem endurspeglar veðmál þeirra á niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar laugardaginn 29. ágúst næstkomandi. Vilhelm Gunnarsson

Erlendir sjóðstjórar sem hafa fjárfest í íslenskum verðbréfum undanfarin ár eru farnir að velta fyrir sér mögulegum áhrifum þess á markaði og efnahag ef Íslendingar samþykkja að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Franskur stórbanki nefnir að með aðild skapist hætta á að auðug fiskimið Íslands opnist gagnvart erlendum útgerðum, á meðan einn stærsti erlendi fjárfestirinn á skuldabréfamarkaði telur að verði já-ið ofan á þá gæti það ýtt undir áhuga á íslenskum ríkisbréfum.


Tengdar fréttir

Erum frekar að fá til okkar skulda­bréfa­fjár­festa sem horfa til langs tíma

Þær takmarkanir sem eru á framvirkum gjaldeyrisskiptasamningum útilokar í reynd að erlendir skuldabréfasjóðir geti farið að eiga í vaxtamunarviðskiptum af þeirri stærðargráðu sem var á árunum fyrir bankahrun, að sögn seðlabankastjóra. Innflæði fjármagns í íslensk ríkisbréf hefur aukist stöðugt að undanförnu og nemur yfir 40 milljörðum á síðustu sex mánuðum.

Er­lendir fjár­festar tekið stöðu með krónunni í auknum mæli síðustu misseri

Á síðustu misserum hefur mátt merkja að erlendir fjárfestingarsjóðir séu í vaxandi mæli að „taka stöðu með krónunni“ þegar litið er til mótaðilasamsetningar á framvirkri stöðu viðskiptabankanna. Hár vaxtamunur við útlönd getur skapað hvata fyrir fjárfesta að kaupa krónueignir með stuttan líftíma þótt reglur Seðlabankans girði fyrir óhóflega stöðutöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×