„Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Áróra L Davíðsdóttir skrifar 27. ágúst 2026 18:10 Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra ávarpaði gesti útifundar Áfram Íslands sem fór fram á Austurvelli í dag og sagði að ekki væri breið samstaða um aðild Íslands að Evrópusambandinu meðal landsmanna. Vísir/Vilhelm Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra ávarpaði gesti útifundar samtakanna Áfram Ísland á Austurvelli. Samtökin hvetja landsmenn til þess að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn. Reynslan hafi sýnt Katrínu að betra væri að Ísland stæði áfram utan Evrópusambandsins.
Aðrir ræðumenn fundar Áfram Íslands á Austurvelli voru meðal annars Áslaug Arna, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, presturinn Auður Eir Vilhjálmsdóttir og stýrir Halldór Benjamín Þorbergsson fundinum. Í ræðu sinni sagði Katrín að hún hafi styrkst í sinni sannfæringu eftir að hafa fylgst með og tekið þátt í alþjóðasamstarfi síðustu ár. Hún hafi sannfærst um mikilvægi þess að hafa fullt forræði og geta gripið til þeirra ráða sem henta hverju sinni, „án þess að þurfa að fara á hnjánum til Brussel til að biðja um leyfi til að bjarga okkur með eigin leiðum.“ Talað sé með óljósum hætti Engin þjóð fari í aðildarviðræður nema af því hún vilji ganga í sambandið. Katrín sagði að þeir sem vilji hefja slíkar viðræður þurfi að rökstyðja þá ákvörðun vandlega. Hins vegar liggi samningsmarkmið, skýrar fyrirætlanir um breytingu á stjórnarskrá sem og skýr og afgerandi þingmeirihluti ekki fyrir ákvörðuninni. „Talað er með óljósum hætti um samningsmarkmið en mun hærra er talað um mögulegan ávinning sem þó er fugl í skógi; lægri vexti, lægri verðbólgu og lægra matarverð,“ sagði Katrín. Meðal gesta fundarins var Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands en hann hefur verið áberandi í baráttunni um „nei-ið“.Vísir Engin rök hafi sannfært Katrínu um að ábatinn af aðild verði slíkur að hann réttlæti það framsal valds sem aðild hafi í för með sér. „Allt tal um verð á kaffibollum í Búdapest er hjákátlegt þegar horft er til þess þegar um er að ræða risastóra breytingu á stjórnskipan landsins — og um það deilir enginn: Möguleg Evrópusambandsaðild kallar á stjórnarskrárbreytingu,“ sagði Katrín. Hún telur að við hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu muni ákvörðunarvaldið færast fjær landsmönnum en það sé fjöregg fámennrar þjóðar. „Ég trúi því að einstaklingum og þjóðum farnist best þegar þau ráða sjálf örlögum sínum og ég er sannfærð um að eftir því sem þjóðir eru fámennari skipti forræði á eigin málum enn meira máli.“ Ekki sé breið samstaða um aðild Stór orð hafi verið látin falla um báðar fylkingar en innan þeirra beggja hafi fólk ólík sjónarmið og ekki eigi að gera lítið úr þeim. Katrín segir að umræðan hafi þó sýnt það að ekki sé breið samstaða um aðild meðal landsmanna. „Samstaða þjóðarinnar hefur verið ávísun á árangur — og sú samstaða er einfaldlega ekki til staðar í þessu máli, “ sagði Katrín. Halldór Benjamín Þorbergsson, einn forsprakka samtakanna Áfram Ísland, stýrði fundinum. Vísir „Nei og aftur nei“ Hún muni segja nei í komandi atkvæðagreiðslu. „Ekki af því að ég er aðdáandi Nigel Farage. Ekki af því að ég er á móti alþjóðlegu samstarfi, ekki vegna þess að ég hafi verið á móti litasjónvarpi. Ekki vegna þess að ég sé of ung til að skilja þetta eða of gömul til að skilja þetta. Ekki vegna þess að ég er kona á breytingaskeiði og skil þess vegna ekki neitt. Ekki vegna þess að ég er fyrrverandi stjórnmálamaður. Ekki vegna þess að ég láti stjórnast af ótta eða þurfi bara að setja kassann út og koma sterk inn á í seinni hálfleik, svo ég grípi niður í nokkur komment af samfélagsmiðlum um þá hópa sem helst eiga ekki að tjá sig samkvæmt internetinu,“ sagði Katrín.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira