„Verkinu er haldið í gíslingu“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 28. ágúst 2026 10:35 Hrafnhildur Arnardóttir, einnig þekkt undir listamannanafninu Shoplifter, segir að verk sitt sé nú til sýnis í hennar óþökk. Samsett Hrafnhildur Arnardóttir, þekkt sem listamaðurinn Shoplifter, segir að verk hennar Chromo Sapiens sé nú til sýningar í Höfuðstöðinni í hennar óþökk. Hún hafi ekki lengur aðgang að sýningarrýminu auk vinnustofu sinnar á svæðinu en búið sé að skipta um lása á byggingunni. Hrafnhildur segir málið hreinan listaverkastuld, enda sé hún réttmætur eigandi verksins.
Í Facebook-færslu segir Hrafnhildur: „Ég hef tekið niður listaverk mitt Chromo Sapiens! Sú útgáfa sem er til sýnis í Höfuðstöðinni er ekki samþykkt af mér.“ Í samtali við fréttastofu segir Hrafnhildur að um hreinan listaverkastuld sé að ræða. „Núna er til sýnis útgáfa af verkinu sem ég lagði ekki blessun mína yfir. Þar af leiðandi er þetta brot á mínum höfundarrétti,“ segir Hrafnhildur. Hún ásamt Lilju Baldursdóttur hafi stofnað rekstrarfélagið Höfuðstöðina sem hafi verið með aðsetur í Elliðaárdal. Þær hafi átt hvor sinn helming í félaginu en fyrir nokkrum árum hafi Hrafnhildur viljað ljúka samstarfinu og segja sig frá rekstrinum. Frá sýningu Chromo Sapiens í Hafnarhúsinu. Myndin er úr safni.vísir/sigurjón „Í svona tvö ár hef ég verið að reyna að fá hana til að skilja að þetta sé ekki fýsilegur rekstur og það hljóti að vera í lagi að loka og þakka fyrir sig og „call it a day“, hreinlega til að minnka okkar tjón. En hún bara þverneitar að gefast upp.“ Ekki fengið krónu fyrir verkið Hrafnhildur segist hvorki hafa fengið krónu fyrir reksturinn né tekjur af verkinu sínu Chromo Sapiens sem hefur verið til sýnis í Höfuðstöðinni. „Ég hef aldrei frá upphafi fengið eina einustu krónu fyrir miðasöluna inn á verkið greidda til mín. Ég átti að fá hluta af miðasölunni til mín sem myndlistarmaður en hún hefur aldrei borist öll þessi ár,“ segir Hrafnhildur. Lögfræðingar Hrafnhildar og Lilju hafi verið í samskiptum en hvorki hafi gengið né rekið í þeim samskiptum. Hrafnhildur hafi að lokum gripið til örþrifaráða og reynt að taka niður verkið sitt í Höfuðstöðinni. Hún hafi tilkynnt það með fyrirvara en hafi síðan verið sökuð um eignaspjöll og skemmdarverk. „Sem er náttúrulega ekki rétt. Ég hef allan rétt á því að sækja mitt verk sem ég hef ekki fengið greitt neitt fyrir að sýna þarna.“ „Chromo Sapiens kveður Höfuðstöðina.“ Af Facebook-síðu Hrafnhildar.Shoplifter „Ég byrjaði á því að taka hljóðmyndina og ljósin úr verkinu. Þá væri verkið ósýningarhæft samkvæmt alþjóðlegum höfundarétti. Hún [Lilja] keypti ný ljós og var búin að baktryggja sig með því að láta gera kópíu af hljóðmyndinni án minnar vitundar. Svo setti ég inn tilkynningu um að verkið væri lokað en hún setti allt í gang á ný. Sem er þjófnaður á mínum höfundarrétti. Það má enginn setja verkið aftur í gang án míns samþykkis ef ég loka því,“ segir Hrafnhildur. Hrafnhildi sé meinaður aðgangur að Höfuðstöðinni Nú sé búið að skipta um lása á Höfuðstöðinni og Hrafnhildur hafi ekki aðgang að húsnæðinu lengur. „Búið er að útiloka mig frá húsnæðinu sem ég er stjórnarformaður yfir og á að vera með lyklavöld að, punktur.“ Sömuleiðis komist hún ekki inn á vinnustofuna sína til þess að klára vinnu á meðan hún er stödd á landinu en Hrafnhildur hefur verið búsett í New York-borg síðastliðin þrjátíu ár. Á vinnustofunni séu ýmis verk, efniviður auk persónulegra muna sem hún hafi ekki lengur aðgang að. „Það er hægt að segja að þetta sé stærsta myndlistarverkarán Íslands,“ segir hún. Verkinu sé stolið í auðgunarskyni Hrafnhildur ítrekar að samkvæmt Bernarsáttmálanum hafi listamaður rétt til að sækja eða taka verk sitt úr umhverfi sem hann telur verkinu ekki samboðið. Réttur listamanns til að ráða yfir eigin verki sé mjög sterkur í Evrópu, sér í lagi á Íslandi. Eigendarétturinn er minn, sýningarrétturinn er minn og höfundarrétturinn er alltaf minn, út í hið óendanlega. „Í rauninni er verið að stela af mér verkinu í auðgunarskyni vegna þess að verið er að selja miða inn á verkið mitt.“ Hrafnhildur segir leiðinlegt að samstarfið og sýningin skuli enda með þessum hætti. Hún sé stolt af því að hafa opnað Höfuðstöðina en sumt sé einfaldlega ekki til frambúðar. Chromo Sapiens verði áfram til sýnis Í yfirlýsingu frá Höfuðstöðinni í Facebook færslu frá 19. ágúst síðastliðnum segir: „Höfuðstöðin er áfram í fullum rekstri og Chromo Sapiens verður áfram til sýnis í Höfuðstöðinni.“ Engin ákvörðun hafi verið tekin af félaginu um að loka sýningunni eða fjarlægja listaverkið. Unnið sé að breytingum á eignarhaldi félagsins en þær muni ekki hafa áhrif á starfsemi Höfuðstöðvarinnar. „Við hlökkum til að halda áfram að taka á móti gestum og bjóða upp á þá upplifun, viðburði og skapandi starfsemi sem hafa mótað þann einstaka anda og ímynd sem Höfuðstöðin stendur fyrir,“ segir í færslu Höfuðstöðvarinnar. Ekki náðist í Lilju Baldursdóttur við vinnslu fréttarinnar.
Myndlist Menning Sýningar á Íslandi Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Sjá meira