Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. ágúst 2026 12:07 Sex þátttakendur töldu að Inga hefði staðið sig best. Vísir Flestir telja að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi staðið sig best af flokksformönnunum í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Örfáir nefna Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, á nafn.
37,7 prósent töldu Kristrúnu hafa staðið sig best í nýrri könnun Maskínu. Þar á eftir kom Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, en 17,6 prósent töldu hann hafa staðið sig best. Sigmundur Davíð er sömuleiðis talinn hafa staðið sig verst af öllum. 7,4 prósent töldu Kristrúnu hafa staðið sig verst. Mat þátttakendanna var borið saman við hvaða flokk þeir væru líklegastir til að kjósa. Þeir sem myndu kjósa Pírata, Samfylkinguna og Vinstri græna völdu helst Kristrúnu á meðan þeir sem myndu kjósa Miðflokkinn völdu Sigmund Davíð. Afar mjótt var á munum milli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, og Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins. 16,8 prósent töldu Þorgerði hafa staðið sig best en 16,7 prósent töldu að Guðrún hefði staðið sig best. Þát öldu 30,5 prósent að Þorgerður hefði staðið sig verst í umræðunni. Rétt rúm tíu prósent þátttakenda völdu Lilju Dögg Alfreðsdóttur, formann Framsóknar. Fæstir telja hana hafa staðið sig illa eða tvö prósent þátttakanda. Ekkert heyrst í Ingu Það vekur síðan athygli að Inga Sæland komst varla á blað en einungis 0,9 prósent nefndu hana á nafn. Það samsvarar sex þátttakendum skoðanakönnunarinnar. 9,8 prósent töldu hana hafa staðið sig verst í umræðunni. Inga hefur látið afar lítið fyrir sér fara í aðdraganda kosninganna þrátt fyrir að vera ein flokksformanna í ríkisstjórninni. Yfirlýst stefna Flokks fólksins er gegn aðild að Evrópusambandinu en Inga sjálf hefur talað fyrir því að fá að sjá samninginn. „Stefna Flokks fólksins er skýr alls staðar. Við erum á móti því að ganga í Evrópusambandið sem slíkt en við höfum aldrei verið á móti því að spyrja um það sem við ekki vitum. Ég segi bara eins og góð vinkona mín sagði við mig þegar ég var lítil táta: Inga mín, sá spyr sem ekki veit. Ég myndi gjarnan vilja sjá það,“ sagði Inga í viðtali í byrjun ágúst. Inga hefur samt sem áður ekki sagt opinberlega hvort hún ætli að segja já eða nei í atkvæðagreiðslunni. Þegar hún var spurð í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í mars sagði Inga að það kæmi ekki neinum við hvernig hún hyggst ráðstafa atkvæði sínu. Fréttastofa sendi þá fyrirspurn á alla þingmenn um hvernig þeir ætluðu að greiða atkvæði en Inga svaraði ekki fyrirspurninni. Núna í morgun staðfesti Inga að hún hefði þegar greitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni og sagði já. Fréttin hefur verið uppfærð.
Skoðanakannanir Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Flokkur fólksins Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Gular viðvaranir á morgun Veður Líkamsárás í Breiðholti Innlent Fleiri fréttir „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Sjá meira