Íhuga fleiri árásir á Hormússund Agnar Már Másson skrifar 31. ágúst 2026 19:32 Donald Trump Bandaríkjaforseti. AP/Alex Brandon Donald Trump Bandaríkjaforseti og hans hæstsettu ráðgjafar vega nú og meta hvort Bandaríkjaher eigi að gera takmarkaðar árásir á Hormússundi í von um að koma í veg fyrir það að Íranir geti endurreist ratsjár- og eldflaugagetu sína á svæðinu.
Bandaríski miðillinn Axios hefur þetta eftir þremur ónafngreindum bandarískum ráðamönnum. Áformin voru þróuð af aðgerðastjórn Bandaríkjahers í Mið-Austurlöndum, CENTCOM, og njóta stuðnings Pete Hegseth varnarmálaráðherra, að því er Axios greinir frá. Þau höfðu aftur á móti ekki verið samþykkt af Bandaríkjaforseta fyrir helgi en það gæti breyst núna eftir að Bandaríkin og Íranir skiptust á árásum um helgina. Íranskir miðlar sögðu frá því í gær að Bandaríkin hefðu ráðist á innviði á Larak-eyju með drónum og að að minnsta kosti einn þeirra hefði verið skotinn niður. Yfirvöld sögðu nokkra hermenn og almenna borgara hafa fallið í árásunum. Axios hefur eftir einum ráðamanni að hugmyndin á bak við áformin sé að draga úr áhættunni á að Íranir gætu ráðist á bandarísk olíuflutningaskip, herskip og herþotur. Hann líkti þessu við að „slá garðinn“. Undanfarna tvo mánuði hefur Bandaríkjaher smám saman náð yfirráðum yfir mestum hluta sundsins og dregið úr hernaðargetu Írans. Axios segir herinn hafa hreinsað jarðsprengjur og reynt að leiðbeina skipum í gegnum sundið. Þetta hafi takmarkað getu Írans til að ráðast á olíuflutningaskip, en hleypt meiri umferð og olíuflutningaskipum um sundið.
Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Sjá meira