Innlent

Allar stöðvar ræstar út vegna elds á Holtavegi

Árni Sæberg skrifar
Mikið viðbragð er við Holtagarða.
Mikið viðbragð er við Holtagarða. Vísir

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er á leið á Holtaveg í Reykjavík vegna elds.

Þetta segir vakthafandi varðstjóri hjá slökkviliðinu í samtali við Vísi. 

Hann kveðst ekki búa yfir nánari upplýsingum að svo stöddu, þar sem slökkviliðsmenn séu enn á leiðinni á vettvang. Allar stöðvar hafi verið ræstar út þar sem ekki sé vitað um umfang eldsins.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×