„Þetta er smjörklípa“ Tómas Arnar Þorláksson og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 2. september 2026 12:08 Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, sakar ríkisstjórnina um að afvegaleiða umræðuna. vísir/einar/ívar Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) undirbýr samningsbrotamál gegn íslenska ríkinu vegna bókunar 35. Málið hafi verið í biðstöðu vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sakar ríkisstjórnina um að afvegaleiða umræðuna með því að leggja áherslu á bókun 35 á meðan ekki sé búið að draga umsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka.
Þó nokkuð hefur verið rætt og ritað um bókun 35 síðan að Íslendingar neituðu áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar sögðu niðurstöðuna skýrt merki um ánægju með EES-samninginn og forsætisráðherra hefur sagt að áhersla verði lögð á að koma bókun 35 í gegnum þingið á komandi þingvetri. Samkvæmt fjölmiðlafulltrúa ESA sem fréttastofa ræddi við hefur Eftirlitsstofnun EFTA gert athugasemdir í nýlegum samskiptum við íslensk stjórnvöld vegna bókunar 35. Ef EES samningurinn verði ekki uppfylltur sé verið að skoða að stefna Íslandi. Engin tímasetning um mögulegt samningsbrotamál liggur fyrir að svo stöddu. Esa hefur áður sent stjórnvöldum formlegt álit vegna þess að bókunin hefur ekki verið innleidd hér á landi. Utanríkisráðherra skoraði á Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, að gerast fyrsti flutningsmaður væntanlegs frumvarps í Silfrinu á sunnudag sem Sigmundur tók ekki vel í. Afstaða Sjálfstæðisflokksins óljós Stjórnarandstaðan mun leggja fram þingsályktunartillögu um að draga umsókn Íslands í Evrópusambandið formlega til baka ef ríkisstjórnin gerir það ekki. Ferill málsins hefur verið til umræðu innan utanríkismálanefndar. Árið 2023 lagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þá utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, fram stjórnarfrumvarp um bókun 35 og Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins varði til að mynda bókun 35 í júní á síðasta ári. Málið hefur verið lagt fram á þingi þrisvar sinnum frá árinu 2023. Guðrún Hafsteinsdóttir er formaður Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Vilhelm Guðrún baðst undan viðtali varðandi hver afstaða Sjálfstæðisflokksins væri núna gagnvart bókuninni. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun þingflokkur Sjálfstæðisflokksins funda í vikunni þar sem bókun 35 verður til umræðu. Ekki tímabært að ræða málið að sögn Guðlaugs Guðlaugur Þór Þórðarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ríkisstjórnina afvegaleiða umræðuna með því að leggja áherslu á bókun 35 við þessi tímamót. „Þetta er smjörklípa. Það fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla sem enginn bað um. Ríkisstjórnin tapaði henni, niðurstaðan er mjög skýr. Nei þýðir nei. Ríkisstjórnin hefur ekki enn upplýst hvort hún ætli að fara eftir þjóðaratkvæðagreiðslunni og er þess vegna að reyna að draga athyglina frá því. En hún þarf auðvitað að fara eftir því sem að þjóðin sagði og draga þessa umsókn til baka. Önnur mál verða að bíða þangað til við klárum það mál.“ Bókun 35 hefur verið hluti af EES-samningnum frá því hann tók gildi 1. janúar 1994 og fjallar í stuttu máli um skyldu aðildarríkja til að tryggja stöðu reglna frá EES gagnvart landslögum. Ef bókunin yrði innleidd myndu reglur EES gilda framar lögum Alþingis í dómsmálum nema Alþingi mæli fyrir um annað, EES-reglur myndu undir engum kringumstæðum ganga framar stjórnarskrá. Eins og stendur meta dómstólar hvort eigi að miða við reglur EES eða lög stjórnvalda ef þau stangast á. Guðlaugur Þór.Vísir/Anton Brink Mun Sjálfstæðisflokkurinn standa í vegi fyrir því að áhersla verði lögð á bókun 35 eða er afstaða flokksins enn sú sama til bókunarinnar? „Við skulum bara ræða þau mál og önnur þegar þar að kemur. Við skulum klára þessa þjóðaratkvæðagreiðslu og niðurstöðu hennar. Það er með ólíkindum að það sé verið að tala um eitthvað annað nákvæmlega núna. Það er algjörlega með ólíkindum.“ Hann segir ríkisstjórnina ekki gera nóg með því að gefa fram að hún muni ekki fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið. „Alls ekki. Við skulum ekki gleyma því að það vissi enginn að aðildarumsóknin væri gild. Ríkisstjórnin setti allt sitt púður og alla sína orku í það að plotta það með Evrópusambandinu að hún væri í gildi. og sagði: „Hér er umsókn sem er í gildi. Eigum við að halda áfram með hana?“ Þjóðin sagði nei. Það þýðir það að menn þurfa þá að draga þessa umsókn til baka og um það snýst málið. Það er niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Nei, þýðir nei.“ „Merkileg forgangsröðun“ Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd og annar varaformaður nefndarinnar, segir í samtali við fréttastofu að farið verði yfir málið þegar það kemur inn í nefndina. Hún vildi ekki gefa upp afstöðu sína gagnvart bókuninni né flokksins en gagnrýnir það að bókunin og fleiri mál hafi verið sett til hliðar á meðan ríkisstjórnin skoðaði inngöngu í Evrópusambandið. „Þetta er merkileg forgangsröðun í þessu efnahagsástandi. Þetta mál mátti samt greinilega bíða allan þennan tíma á meðan ríkisstjórnin var í ESB-vegferð,“ sagði Diljá. Hún bendir jafnframt á að enn eigi eftir að koma í ljós í hvaða búningi innleiðing bókunarinnar muni vera þegar það verður að endingu lagt fyrir þingið. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.vísir
Evrópusambandið Bókun 35 Utanríkismál Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024) EFTA EES-samningurinn Alþingi Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Erlent Fleiri fréttir „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Sjá meira